Væl Eyjamanna

Auðvitað er það sanngirnismál að allar útgerðir njóti jafnræðis og allur afli verði vigtaður hér á landi. Þessi sérréttindi þeirra sem flytja út óunninn fisk á að afnema og ekki nema gott til þess að vita ef þetta verður til þess að auka fiskvinnslu hér á landi. Það hlustar vonandi enginn á þetta væl Eyjamanna.


mbl.is Telja útflutning í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er eins og annað ekki einhlítt. Sannleikurinn er sá, að það er að fást mun betra verð fyrir útfluttan ferskan fisk en "unninn" eins og það er kallað þegar pólskar og thailenskar kerlingar á vestfjörðum eru búnar að klappa hverjum titti fyrir smánarlaun. Hvað halda menn að hefði skilað sér í þjóðabúið fyrir strandveiðifiskinn í sumar, ef hann hefði verið "unninn" í einhverju skítugu frystihúsi úti á landi? Ellegar hvað sjómennirnir, sem sóttu fiskinn í sjóinn, hefðu fengið fyrir hann ef sægreifarnir hefðu fengið sjálfdæmi um hvað fyrir hann hefði verið greitt?

Flóki (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 13:02

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Flóki. Hvers vegna þora menn ekki að láta vigta fiskinn hér heima? Allt tal þitt um pólskar og thailenskar kerlingar ber vott um fordóma og rugl svo ég tali ekki um álit þitt á frystihúsum úti á landi. Heldurðu að þau bresku séu hreinlegri? - Þvílíkt rugl og steypa sem þetta er hjá þér.

Haraldur Bjarnason, 10.11.2009 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband