Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Fjármálastofnanir eru ekki að tapa neinu

Þetta er allt hárrétt sem Villi segir þarna og það hefur verið ótrúlegt að hlusta á þennan málflutning um tap fjármálakerfisins ef lögum verði framfylgt. Hverju eru fjármálastofnanir að tapa með dómi Hæstaréttar? Ekki neinu. Þær eru kannski að tapa einhverjum tölum sem þær höfðu sett á blað. Þær eru ekki að tapa neinum raunverulegum peningum. Eingöngu tölum sem urðu til með ólöglegum gjörningi. Það hefur Hæstiréttur nú staðfest og þeim dómi ber að framfylgja.
mbl.is Segir „sveiattan" við málflutningi Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak

Þetta er frábært framtak hjá Fáskrúðsfirðingum og vonandi tekst vel að fjármagna þetta verkefni og koma húsinu frá Hafnarnesi yfir í Búðakauptún á ný. Þetta glæsilega hús án á efa eftir að nýtast vel þar og verða til sóma.
mbl.is 450 milljónir króna til endurbóta á gömlu húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt er svo með öllu illt...

Fátt er svo með öllu illt að eigi boði gott. Þannig er það oftast nær og virðist vera að koma í ljós undir Eyjafjöllum núna. Sem betur fer.
mbl.is Græn tún einkenna jarðir á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmenn komnir yfir síðasta söludag

Þeir eru bara svona og við því er ekkert að gera. Vandamálið virðist vera að framsóknarmaðurinn Jón Bjarnason missi ráðherrastól. Það er eitthvað sem þeir vita og líklega ljóst. Annars hélt ég að framsóknarmenn allra flokka væru komnir fram yfir síðasta söludag.
mbl.is Eru andvígir frumvarpi Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú geta allir unnið saman

Fyrir kosningar talaði Hanna Birna mikið um að allir þyrftu að vinna saman eftir kosningar. Nú stendur henni það til boða og þetta boð hlýtur hún að þiggja. Það hefur aldrei gerst áður að fulltrúa minnihluta hafi verið boðið eitt æðsta embætti borgarstjórnar.
mbl.is Hanna Birna hefur ekki tekið ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver sponsoraði?

Guðlaugur Þór í fótbolta í leirnum í fjörunni í Englendingavík. - Hver skyldi hafa verið "sponsor" að þeim leik?
mbl.is Fréttamaður og þingmaður í leðjuslag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtum makrílinn betur

Nú er um að gera fyrir fiskvinnslur hér á landi að nýta sér þetta tollfrelsi og frysta makríl til útflutnings. Annars ættum við Íslendingar að vinna makrílinn enn meira eins og nágrannaþjóðir okkar gera. Heitreyktur makríll er lostæti og Hornfirðingar eru þegar farnir að vinna makrílinn þannig. Niðursoðinn makríll er líka góður og nú þegar þessi fiskur gengur hér upp að ströndum er lag fyrir niðursuðufyrirtæki að auka framleiðsluna.

 


mbl.is Villa í tollakerfi ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengjast þeir ekki allir lögmannsstofum?

...ég bara spyr: Hvaða sjálfstæðisþingmaður tengist ekki einhverri lögmannsstofu? Hingað til hefur nú meirihluti þingmanna Sjálfgræðisflokksins (tilvitnun í útvarp matthildi) verið úr þeirri stétt. Þessi spurning sjóarans síkáta var því í raun óþörf en sárasaklaus engu að síður.
mbl.is Þurfti að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve margir laxar lifa af sleppingar?

Vel má vera að það geri eitthvert gagn að sleppa stórlaxi. Hins vegar setur maður spurningamerki við slíkt eftir að fregnir bárust af því að grenjaskyttur hefðu fundið laxabein við tófugreni. Tófan nær sér ekki í lax nema á þurru landi, öfugt við það sem minkurinn gerir. Því er líklegt að umrædd laxabein hafi verið úr laxi sem hafi rekið dauðann á land.

Þegar stórlaxi er sleppt hefur hann verið lengi á króki veiðimanns og er því verulega þreyttur. Það er því stór spurning hverjar lífslikur þessara laxa eru. Má ekki alveg eins búast við að hluti þeirra drepist og hvaða gagn gera sleppingarnar þá? Ástæða er þvi til að kanna vel hverjar lífslíkur þessara sleppilaxa eru.


mbl.is Veiðimenn beðnir að sleppa stórlaxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæstir kvarta undan of mikilli vinnu

Annars vegar tefja þingmenn stjórnarandstöðunnar þingstörf með fáránlegu málþófi og hins vegar kvarta þeir yfir of löngum þingfundum. Hvað er þetta lið að hugsa?

Tek undir með Sigmundi Erni að benda þingmönnum á að þeir hefðu jú vinnu. Nú á tímum kvarta fæstir yfir of mikilli vinnu. Hins vegar hefur það aldrei þótt góður siður á vinnustað að slugsa og tefja fyrir þeim sem vilja vinna vinnuna sína. Þetta ættu þingmenn stjórnarandstöðunnar að hafa í huga núna.


mbl.is Líst illa á kvöldfund á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband