Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Skref í rétta átt

Loksins er stigið skref í átt að réttlæti út úr séreign LÍÚ á auðlind allra landsmanna. Ástæða til að þakka Jóni Bjarnasyni hugrekkið.
mbl.is Um 200 bátar fá skötuselskvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru varaflugvellir

Nú sýnir sig vel hversu mikilvægt það er að hafa varaflugvelli hér á landi fyrir millilandaflugið í öðrum landshlutum. Akureyrarflugvöllur stóð sína plikt í gær og nú er komið að Egilsstaðaflugvelli. Á Egilsstöðum er líklega eitt besta flugvallarstæði landsins og þar er búið að byggja upp góða flugstöð. Flugbrautin þjónar vel þeirri stærð af þotum sem notaðar eru í millilandaflugi.

Varaflugvöllur þjónar aldrei fullkomlega tilgangi sínum nema hann sé á öðru veðurfarssvæði en aðalflugvöllurinn. Það á svo sannarlega við um Egilsstaðaflugvöll og í flestum tilfellum Akureyrarflugvöll. Auðvitað er talsverður akstur fyrir farþega af suðvesturhorninu til og frá Egilsstöðum en ef mögulegt er að fljúga sjónflug innanlands er þetta lítið mál.

Aksturinn til og frá er nú samt það, sem bæði Norðlendingar og Ausfirðingar þekkja, ef þeir ætla að bregða sér út fyrir landssteinanna og er ekkert meira en fólk leggur oft á sig í ferðalögum í útlöndum. Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur hafa nú sannað tilverurétt sinn sem alþjóðlegir flugvellir og hafa raunar gert áður, eins og berlega kom í ljós í virkjunar- og stóriðjuframkvæmdum fyrir austan, þegar millilandaflug var þar vikulegt.


mbl.is Ekkert innanlandsflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strandsiglingar og gjaldtaka

Það jákvæða í þessum drögum að samgönguáætlun er að kanna möguleika á strandsiglingum. Við erum ábyggilega eina strandþjóðin í heiminum sem ekki er með þannig flutninga. Það þurfa ekki allar vörur að komast samdægurs á milli staða. Hafnirnar eru til og létta þarf þyngstu bílunum af þjóðvegakerfinu.

Hringvegurinn okkar er af sömu gerð og sveitavegir á Norðurlöndunum, mjór og aðeins með eina akrein í hvora átt. Á slíkum vegum ytra er umferð stærstu flutningabíla takmörkuð og þeim beint á margra akreina hraðbrautir. Það er hreint ótrúlegt að alvöru vegaframkvæmdir hér skuli ekki hafa verið fjármagnaðar með gjaldtöku hingað til. Það er gert á Norðurlöndunum og þú keyrir ekki lengi þar á bestu vegum án þess að borga toll. Tæknin í dag gerir þetta einfalt í framkvæmd og veglykill eins og í Hvalfjarðargöngum getur virkað um allt land og meira að segja í bílastæðahús líka. Hvað þá ef nýjast tækni með gervihnattasambandi yrði notuð.

Það er brýnt að koma alvöru vegaframkvæmdum af stað og því á að skoða þessa kosti hratt og örugglega.


mbl.is Samgönguáætlun lögð fram á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær flugur á leið til London

"Icelandair hefur aflýst tveimur áætluðum flugum til London," þarna starfar magnað fólk sem hefur áhrif á náttúruna. Getur það ekki aflýst eldgosi líka fyrst það getur ráðið ferðum skordýranna á milli landa? Annars hafa nú tvær flugur lítið að segja í þeim aragrúa flugna sem er í umhverfi okkar.
mbl.is Icelandair aflýsir flugi til London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað svo?

...og hvað ætla framsóknarmenn svo að gera?
mbl.is Aftur kallað eftir umræðu um eldgosið á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hornfirðingar vildu suður

Hornfirðingar kusu um það á sínum tíma að fylgja Suðurlandi frekar en Austurlandi. Auðvitað eiga þeir meiri samleið með Austurlandi. Fiskurinn kemst ekki til Keflavíkur núna frekar en þeir sjálfir nema lengri leiðina.
mbl.is Löng leið með fiskinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lambið er einfaldlega of dýrt

Hefur það virkilega aldrei hvarflað að sauðfjárbændum að lambakjöt sé einfaldlega of dýrt í samanburði við önnur matvæli? Með verðlagningu hafa heilu kynslóðirnar verið vandar af lambakjötsneyslu. Þetta gerist þrátt fyrir að lambakjörsframleiðslan sé að stórum hluta í boði skattgreiðenda landsins með niðurgreiðslum. Meira að segja stéttarfélag bænda er ríkisstyrkt. Þarna þarf að taka verulega til. Það er stóra málið. Helst má þó skilja á fréttinni að formaður sauðabændanna vilji þvinga almenning til lambakjötsneyslu. Þess þarf ekki ef hefur fólk hefur einhvern valkost og getur leyft sér að kaupa lambakjöt. Þá verða Íslendingar ekki lengi að venjast á neyslu þess aftur. 
mbl.is Eggin og fleskið beint frá banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyð en ekki í fíflaskap

Gott til þess að vita að allt gengur vel en spurningin er hver kostar vakt björunarsveita þarna upp frá. Gosið er ekki í alfaraleið og á þekktu óveðurssvæði. Fimmvöruðuháls hefur ekki verið neitt lamb að leika sér við hingað til. Munum að björgunarsveitir eru til þess að  hjálpa okkur í neyð en ekki i fíflaskap.
mbl.is Björgunarsveitir á niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband