Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Stíflað klósett

Allt ratar nú orðið inn í fréttir. Þriggja metra seglbátur sökk og var náð upp. Kemur kannski frétt um stíflað klósett næst? 
mbl.is Skúta sökk í höfninni á Hólmavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð viðurkenning

Þetta er glæsilegt og góð viðurkenning fyrir það sem þeir bræðurnir Heiðar, Magni og Viðar hafa gert við uppbyggingu þessarar tónlistarhátíðar í gamalli og hrörlegri mjölskemmu síldarbræðslu KHB í heimabyggð þeirra á Borgarfirði eystra. Ástæða er til að óska þeim bræðrum  og Borgfirðingum öllum til hamingju með Eyrarrósina. Það þarf ekki alltaf stór og mikil menningar- og tónlistarhús til að gera góða hluti sem tekið er eftir.
mbl.is Bræðslan fékk Eyrarrósina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarríki siðlausra lögfræðinga

Hvað réttarríki er hann Bjössi að tala um? - Ef það er Ísland þá er það nú þannig að þar er skipt um kennitölur daglega og fyrirtæki breyta um nafn. Lögfræðingar sitja í dómstólunum, hvort sem er héraðsdómum eða hæstarétti og lögfræðingar eru líka í hópi þeirra sem eru að skipta um kennitölur á fyrirtækjum. Þjóð með svo siðlausa lögfræðinga getur ekki verið í réttarríki. Þetta á Björn Þorri að vita. Á þessu öllu tapar þjóðin og því er hæpið að gefa skuldugu fólki einhverjar falsvonir um réttlæti í þessu þjóðfélagi.


mbl.is Sigur fyrir réttarríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofna frekar banka

Heyrði ágætis innlegg í þessa umræðu frá Jónasi Kristjánssyni á Rás 2 í morgun. Hann benti á að Arnar og félagar hefðu átt að stofna banka. Þá þyrfti ekki að breyta lögum. Þetta hefðu íslensku bankaeigendurnir gert og hleypt af stað fjárhættuspilum með myntkörfulánum með 100% veðum í íbúðum og bílum. Arnar og félagar væru einfaldlega þremur árum of seinir. Hugmynd þeirra væri af 2007 kynslóðinni. Þeir töluðu um að ná til útlendinga og það hefði Icesave gert því þúsundir útlendinga hefðu tekið þátt í því fjárhættuspili.

Þetta var hárrétt hjá Jónasi. Myntkörfulánin, Icesave, kúlulánin og hvað þetta hét nú voru bara fjárhættuspil og í versta falli keðjubréf, eins og Geir og Grani bentu réttilega á í Spaugstofunni einu sinni.


mbl.is „Kasínó er raunhæfur kostur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg af loðnu

Fyrst Hafró gat fundið loðnu þá er ljóst að mikið er af henni. Nú er vonandi að meiri kvóti verði gefinn út sem nýtist þjóðarbúinu.
mbl.is Nóg af loðnu en brælan tefur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband