Skammist ykkar

Ég er hlynntur þeim friðsamlegu mótmælum sem hafa verið að undanförnu en að ráðist sé að mönnum gangandi hvar sem er hér á landi er óþolandi. Þeir sem það gera eiga ekkert gott skilið. Þá skiptir engu hvaða maður á í hlut. Við eigum að geta gengið óhult hér um götur og gestir okkar líka, hvaðan sem þeir koma. Skammist ykkar, þið sem að þessu stóðuð.
mbl.is Veist að Jóni Ásgeiri í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sylvía

þetta var snjóbolti

Sylvía , 17.12.2008 kl. 20:52

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Veit ekki Sylvía en mér finnst það skítt að menn geti ekki gengið óhultir um götur bæja hér á landi.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 20:55

3 identicon

Ég vil líka friðsamleg mótmæli, en ég verð að segja að ég er hræddur um að þetta sé bara byrjunin.  Svo sannarlega var þetta bara snjóbolti í dag.  En eftir mánuð? 

Ef ríkistjórnin fer ekki að sjá sóma sinn í því að fara að axla ábyrgð, ef nú verður ekki farið að hafa hraðann á að fara að kalla fólk til ábyrgðar þá mun þetta bara versna.  

Ég vona að fólk grípi ekki til ofbeldis, en ég verð að segja að ég skil það ofskaplega vel að fólk sé farið að verða sjóðandi reitt!

Vonum að þetta kveiki á perunni....

Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 21:02

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú Unnsteinn. Við erum öll meira eða minna reið. En....Ég vil að fólk geti gengið um götur hér....Hver sem er.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 21:07

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Anna, þú færð þann pening ekkert frekar með því að lemja hann eða einhvern annan. Ofbeldi hefur aldrei leitt af sér neitt gott.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 21:16

6 identicon

Ég veit ekki, en ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að þetta sé bara upphafið.   Flestir ungir menn og konur með lítil börn á framfæri eru enn að vinna sinn uppsagnarfrest.   Ég hef stórar áhyggjur af því hvað gerist þegar þetta fólk þarf ekki að mæta meira í vinnu.   Það er víst í janúar til og með mars.   Held að það sé bara toppurinn á ísjakanum sem við erum að horfa upp á núna.   Bíð ekki í ungt fólk með lítil börn á framfæri sem það getur ekki séð farborða og er komið í þrot.  Á einhvern hátt fær þetta fólk útrás.  EÐLILEGA

Berglind (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 21:21

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sigrún, ég ætla rétt að vona að allir íbúar landsins og gesir okkar geti áfram gengið óhultir hér um götur. Alveg óháð því hvernig afkoma okkar er. Ég er ekki að verja gjörðir Jóns Ásgeirs og útrásargauranna. Mér finnst þær svívirðilegar en menn eiga samt að geta verið hér á götum án þess að hafa lífverði. ---Ekki flóknara en það.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 21:24

8 Smámynd: Víðir Benediktsson

Sumir eiga nú samt að vera í vernduðu umhverfi (Litla-Hrauni) og ekki gangandi um göturnar.

Víðir Benediktsson, 17.12.2008 kl. 21:35

9 identicon

fynst að fólk sem missi vinnu fái frystingu á öllum lánum um leið og atvinnulok eru .....

bpm (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 21:39

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það getur vel verið Víðir en samt sem áður eigum við að geta gengið um götur, hver sem er, án þess að ofbeldi sé beitt gegn okkur.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 21:40

11 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég er alveg sammála þér Halli en mér finnst lélegt að ekkert að farið að gerast í rannsóknarmálum. Menn hafa verið settir í gæsluvarhald af minna tilefni svo rannsóknarhagsmunir skaðist ekki.

Maður er farinn að fá það á tilfinninguna að stjórnvöld vilji beinlínis að rannsóknarhagsmunir skaðist. Nógur tími til að leita að sökudólgum var eitt sinn sagt. Ekki ætla ég að kenna útrásarvíkingnum um þá hneisu að þeir skuli ganga lausir.

Það var heldur ekki olíufurstunum að kenna að þeir voru sýknaðir. Meðferð bankamálanna er farið að minna óþægilega á olíumálið þar sem enginn axlar ábyrgð nema eitthvað smápeð hjá ESSO sem var svo óheppinn að verða borgarstjóri.

Víðir Benediktsson, 17.12.2008 kl. 22:03

12 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Jón Ásgeir getur varla búist við öðru en orði í eyra, og jafnvel sjóbolta í auga.  Það eru það margir sem eiga eftir að þola gjaldþrot, heimilismissi, brostnar vonir og sundraðar fjölskyldur á þessum vetri. 

Meðan það opinbera finnur enga sökudólga þá mun fólkið hrópa.

Magnús Sigurðsson, 17.12.2008 kl. 22:06

13 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Víðir og Maggi. Ég segi enn og aftur að það eiga allir að geta gengið óhultir hér um götur. Sama hvað gerist í stjórnkerfinu og ekki afsaka ég klúðrið þar.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 22:14

14 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég hef oft fengið snjóbolta í smettið án þess að það væri talið varða við almannaöryggi.  því segi ég enn og aftur meðan það opinbera finnur enga sökudólga þá mun fólkið hrópa.

Reyndar verður ekki sé á mbl fréttinni að það hafi verið nokkur snjóbolti á ferð.  Þá er það orðin spurning hvort "þeir" eigi að ver óhultir fyrr málfrelsinu.  Nema hér sé um nýtt Lúkasar mál að ræða.

Magnús Sigurðsson, 17.12.2008 kl. 22:24

15 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hef hvergi séð minnst á snjóbolta í neinum fréttum. Bara í kommenti hér.

Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 22:47

16 identicon

Ég skammast mín ekkert

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband