Hvaða nýjung er þetta hjá Ríkisskattstjóra?

Hefur það ekki alltaf verið á hreinu að maður þurfi að gefa upp tekjur, eignir og skuldir við skattayfirvöld árlega? Hvaða nýjung er Ríkisskattstjóri að færa okkur hér? Hverjir eru þeir sem komist hafa upp með að gefa ekki upp sínar tekjur, eignir eða skuldir? Hvers vegna ekki bankar og önnur fyrirtæki líka?
mbl.is Leynd gagnvart skatti á ekki rétt á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þetta er góð spurning.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 00:04

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nei Halli minn, ef þú gafst ekki upp bankainnistæðurnar þínar þá gerði banki það ekki þó eftir væri leitað.  Það gerði bankaleyndin.

Magnús Sigurðsson, 18.12.2008 kl. 00:15

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Maggi. Þessi bankaleynd virðist bara gilda debet en ekki kredit. Veit ekki betur en bankarnir eigi fyrirtæki sem kallast "Lánstraust",  þangað fara allar upplýsingar um þá sem skulda og lenda í vanskilum. Um hver áramót ýti ég bara á einn takka á einkabanka mínum og þá er skatturinn búinn að fá allar upplýsingar sem hann þarf. Þetta á auðvitað að gilda um alla. 

Haraldur Bjarnason, 18.12.2008 kl. 07:35

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Eins og við höfum orðið varir við þá er öllum kredit færslum haldið vel til haga.

Magnús Sigurðsson, 18.12.2008 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband