Vonandi helst sjarminn

Staðarskáli hefur aldrei verið þessi dæmigerða ímynd vegasjoppu. Ég man eftir þegar maður stoppaði þarna fyrst, lítill skáli, Magnús nýkomin út úr flutningabílnum og farinn að afgreiða. Síðan þróaðist þessi skáli. Varð að veitingahúsi, þar sem hægt var að fá almennilegan mat í hádeginu og gott meðlæti með kaffinu þess á milli. Ég ætla rétt að vona að þessi sjarmi fari ekki af skálanum þótt hann færist aðeins. Vegabæturnar eru orðnar miklar, t.d. á Öxnadalsheiði, sem nánast er ekki heiði lengur og nú eru vegabætur í Hrútafirði en það er gott að stoppa einu sinni á leið milli Norðurlands og Suð- Vesturlands.
mbl.is Gamli Staðarskálaandinn fylgir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Þarna var ég í fædi í 12 ár...

Gulli litli, 25.9.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..og nærðist þokkalega var það ekki, Gulli?

Haraldur Bjarnason, 25.9.2008 kl. 23:08

3 Smámynd: Gulli litli

Jú, hefdi vel getad lifad fleiri ár á Þessu fædi...

Gulli litli, 25.9.2008 kl. 23:20

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég minnist maltflösku og pylsu með bensínbragði með nostalgískri hlýju.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.9.2008 kl. 23:20

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Maggi heitinn & Bíbí frænka bjuggu til þennann sjarma sem þið minnist svo fallega & börnin þeirra tóku upp eftir þeim.  Ég á þrjúhundruð & eitthvað skemmtilegar minníngar þaðan frá minni bernzku & mun alltaf detta í einkvurn söknuð yfir ~skaðarstálanum~ mínum.

Í dag er nýji skálinn líklega bara n1tt dæmið um ekkert í ~zjarma~.

& hvað ég hágræt nú Brúarskálann minn, er ekkert fyndið ...

Steingrímur Helgason, 25.9.2008 kl. 23:33

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

ÓttaZt þetta Zjarmaleyzi Zteini...bara N einn sjoppuskálinn.

Haraldur Bjarnason, 25.9.2008 kl. 23:42

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég stoppaði nú oftar í Brúarskála og kem til með að sakna hans

Sigrún Jónsdóttir, 25.9.2008 kl. 23:45

8 identicon

Nánast undantekningarlaust stoppaði ég í Staðarskála á leið norður eða til baka suður, fékk mér einhvern mat eða kaffi og með því og á góðum degi fór maður oft niður og út á pallinn sem er (var) þar og naut veðurs og hvíldar, mér er til efs að nýji N1 skálinn státi af þessari skjólgóðu aðstöðu, en ætla ekki að dæma fyrr en ég hef kannað aðstæður, líklega núna strax eftir næstu mánuðarmót, alltaf gaman að koma til Akureyrar

Jón Ingi Kr. (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 10:16

9 identicon

Ég held að flestir landsmenn eigi eftir að sakna staðarskála sárt, held ég hafi aldrei sleppt stoppi í staðarskála á leið minni þar framhjá.

AndriR (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 12:29

10 Smámynd: dvergur

Það stefnir í fleiri nonstop ferðir hjá mér. Er ekkert sérstaklega hrifinn af N1 stöffinu, en það má svosem gefa þessu smá séns áður en maður dæmir.

dvergur, 26.9.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband