Arnar og Bjarka áfram

Það er gott til þess að vita að stjórn knattspyrnumála á Akranesi skuli vera í samningaviðræðum við þá Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni um að þjálfa lið ÍA áfram. Þeir hafa sýnt og sannað þennan stutta tíma að þeir eru til alls vísir. ÍA hefur tvisvar fallið niður um deild áður og í bæði skiptin komið upp með sterk lið, skipuð ungum heimastrákum. Þeir Arnar og Bjarki hafa lýst því yfir að þeir vilji byggja á heimamönnum. Það er það sem þarf að gera. Ekki vera að kaupa einhverja misgóða gaura víða að. Hvort þeir hafi einhverja menntun til þjálfunar skiptir engu máli, reynslan er mikilvægari, hana hafa þeir. Annars er nánar fjallað um þetta í Skessuhorni http://www.skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=77209&meira=1

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já tek undir það, hef fulla trú á að bræðurnir komi okkar mönnum beint aftur upp.

Og svo spái ég Íslandsmeistaratitli á skagann árið 2011!!

Andrir (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 22:19

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Árið 2011 verða 60 ár frá því Akranes varð fyrst Íslandsmeistari, árið 1951. Árið áður höfðu sömu strákar verið íslandsmeitarar í 2. flokki.  Svipað gerðist árið 1978  þegar ÍA kom upp úr annarri deild og varð svo Íslandsmeistari 1970 og síðan marg oft eftir það. Svo 1991, að mig minnir og 5 ár eftir það.

Haraldur Bjarnason, 25.9.2008 kl. 23:13

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Átti að vera 1968 en ekki 1978

Haraldur Bjarnason, 26.9.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband