Það er af sem áður var

Það er sannarlega af sem áður var. Hér í eina tíð var krónan felld nánast eftir pöntunum frá útgerð og fiskvinnslu. Nú eru fyrirtækin svo skuldsett í erlendum myntum að hátt gengi er jafnvel skárra en lágt gengi. Auðvitað kemur hár olíukostnaður útgerðarinnar líka á móti þessum auknu tekjum í íslenskum krónum. Þetta tvennt, olían og erlendu skuldirnar, virðast því gera það að verkum að aldrei þessu vant kallar útgerðin á hærra gengi.
mbl.is Útgerðin kallar eftir stöðugleika og sterkara gengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll

Þetta ef ofureinfalt, því veikara gengi, því lægra afurðaverð í erlendri mynt, því minna af erlendri mynt til að borga lán sem eru í erlendri mynt

Hlýri

Hlýri (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 16:42

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Málið er að útgerðin er ekki að fá lægra afurðaverð í erlendri mynt. Afurðaverð hefur farið hækkandi um tíma. Útgerðin gerir upp í íslenskum og greiðir allan sinn rekstrarkostnað í íslenskum krónum, nema erlendu lánin og það eru þau ásamt olíunni sem vega orðið meira en fleiri krónur fyrir afurðinar. 

Haraldur Bjarnason, 26.9.2008 kl. 17:07

3 identicon

Sæll Haraldur, þetta er ekki rétt hjá þér, afurðaverð erlendis hefur víst lækkað, það vill svo vel til að þekki þetta mjög vel starfs míns vegna. Sjófrystur fiskur hefur lækkað mikið og er nú svo komið að lækkun í erlendri mynt hefur þurrkað út gengislækkunina, landunnartegundir hafa lækkað töluvert svo sem saltfiskur, gámaýsa hefur lækkað töluvert í erlendri mynt, karfaverð í þýskalandi hefur lækkað mikið, kolategundir hafa líka lækkað bæði á markaðinum hér heima og erlendis. Kostanaðurinn hefur stóraukist, hvort sem það sé veiðikostaður, vinnslukostnaður eða fluttingskostnaður. Einu tegundirnar sem hafa hækkað eitthvað í verði eru uppsjávarafurðir. Ef þú veist betur vinsamlega fræddu mig á því

Svona er þetta

Hlýri

Hlyri (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 19:11

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lestu fréttina. Sjávarútvegsráðherra segir verð afurða hafa hækkað ytra. Hann er þá bara einfaldlega ekki að segja satt miðað við það sem þú segir

Haraldur Bjarnason, 26.9.2008 kl. 23:51

5 identicon

Sæll

 Það er merkilegt að upplifun stjórnmálamanna er önnur en okkar sem að komum nálægt þessu, þessu til stuðnigs vill ég biðja þig um að lesa grein með yfirskriftinni "þrýst á um lægra verð á sjávarfangi" sem er á bls 6 í fréttablaðinu í dag. Þessi lækkunarfasi í erlendri mynt hófs fyrir nokkrum mánuðum, eftir að bolfiskafurðir sérstallega höfðu hækkað mikið í erlendri mynt frá árinu 2006. Hinsvegar hefur það alltaf verið svo að þegar gengið hefur lækkað, hefur afurðaverð í erlendri mynt lækkað að einhverju leyti með

Hlýri 

Hlýri (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband