Svona eiga skoðunarmenn að vera

Svona eiga skoðunarmenn að vera. Skoða hlutina svolítið gagrýnum augum og þessi samanburður á dýptarmælingum varðskipsins og lögfræðingunum er snjall. Lögfræðingur tekur sama tímakaup og tekið er fyrir varðskip með heilli áhöfn og olíufrekum kraftmiklum vélum. Snjallir þessir Vestfirðingar að benda á þetta.
mbl.is Lögmaður kostar álíka og skip í dýptarmælingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég velti því nú fyrir mér varðandi þessa taxta, hvort Landhelgisgæslan sé ekki að selja sig of ódýrt út frekar en að lögfræðingarnir hafi verið svo svakalega dýrir.  Lögfræðistofur geta líklega ekki selt út nema 70% af tímum sínum eða 120 tíma á mánuði.  Inn í taxta þarf að reikna orlof, lífeyrissjóð, opinber gjöld og annan fastan launakostnað sem nemur á bilinu 30 - 35% og síðan þann tíma sem ekki er seldur út.  Þetta er því á að giska 70% álag.  Svo bætist við fastur kostnaður vegna aðstöðu, þ.e. skrifstofa, skrifstofubúnaður, rekstrarkostnaður, hluti í yfirstjórn, hagnaður til eigenda, o.s.frv.  Ef þetta er allt reiknað saman, þá er líklegt að mánaðarlaun lögfræðings sem er seldur út á kr. 15.000 sé að hámarki um 860.000 kr.  Hvort það sé hátt eða lágt læt ég aðra um að dæma.

Það er alveg öruggt að varðskip sem leigt er út á 18.000 kr. á tímann er illilega undirverðlagt.  Kr. 180.000 á tímann væri líka of lágt, þannig að þarna hafa Vestfirðingar fengið góðan díl hjá Georgi Lárussyni og það hefur í leiðinni verið farið illa með skattaborgara í öðrum landshlutum.  Það vill nefnilega svo til, að sá hluti kostnaðarins af þjónustu varðskipsins, sem ekki var greiddur af Vestfirðingum, var greiddur af okkur hinum.

Marinó G. Njálsson, 5.9.2008 kl. 17:54

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Anna var þetta þá Baldur en ekki varðskip eins og þeir segja Vestfirðingar?

Haraldur Bjarnason, 5.9.2008 kl. 20:50

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Baldur er varðskip og sjómælingabátur, áhafnarmeðlimir eru starfsmenn Landhelgisgæslunnar.

MBK

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 5.9.2008 kl. 21:14

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hafa skal það sem sannara reynist. Baldur er skráður sem sjómælingabátur, ekki varðskip. Væri hann skráður sem varðskip myndu allt aðrar reglur gilda um áhafnarskráningu.

Víðir Benediktsson, 5.9.2008 kl. 22:37

5 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

weekend_662605.gif

Anna Ragna Alexandersdóttir, 5.9.2008 kl. 23:17

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Anna Ragna af hverju fæ ég ekki svona?

Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 01:11

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Marinó ég gef nú lítið fyrir þessi rök þín eins og með að löbbarnir geti ekki selt út nema 70% tíma sinn og þurfi því að vera 18 þús á tímann sem er auðvitað fáranleg upphæð. Þetta á við marga aðra sjálfstæða atvinnurekendur sme eru að selja sig út á 3-5000 á tímann. Ég er hins vear sammála þér að varðskip er á spotprís en þá er spurningin um hverjir eiga varðskipið og hvers veirði dýptarmælingarnar eru fyrir land og þjóð, ekki bara Vestfirðinga sem borga. Anna, Baldur var smíðaður á Seyðisfirði og þeir Seyðfirðingar hafa alltaf verið framarlega í skipasmíði. Viðir þetta er rétt hann á að þjóna sem varðskip líka þótt lítill sé...enga öfund Hólmdís

Haraldur Bjarnason, 6.9.2008 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband