Flýtur á meðan ekki sekkur

Úbbs!! - Hús sem á að mara í hálfu kafi í Tjörninni í Reykjavík! - Er þetta eitthvert tákn um stjórnun mála í Reykjavíkurhreppi. Hreppsskrifstofa Reykjavíkur er jú við Tjörnina. Þetta er svona hálf-"blörrað" hús eða kannski að við segjum "marrað".- Ætli Ólafur F sé nokkuð í þessu húsi...eða Villi....eða Dagur...eða?

Svo er spurning hvort það hangir á floti allan tímann meðan Listahátíð stendur yfir. Það hefur ekki margt hangið á floti í og við Tjörnina að undanförnu. - Ekki lengur en hundrað daga, hve lengi stendur Listahátið? - "Flýtur á meðan ekki sekkur," var einhverntíma sagt.


mbl.is Húsi sökkt í Tjörnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Heldurðu að ´Ráðhúsið sé farið að síga?

Hólmdís Hjartardóttir, 15.5.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég hlýt að vera mjög "ólistræn" í mér.  Finnst húsið flott en gjörningurinn stórfurðulegur og  tabúúú.

Sigrún Jónsdóttir, 15.5.2008 kl. 11:12

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hólmdís. Það er í sjálfu ser ekkert undarlegt þótt eitthvað láti undan í þessum hamförum við Tjörnina. Svo er það þetta með listina Sigrún. Það er orðið mjög erfitt að skilgreina hana. Um daginn var það upptaka af einhverju bænahaldi og nú er það þetta líka fínasta hús í Tjörninni!!! - Þetta er örugglega allt list. Það þarf kannskiað finna nýtt heiti á það sem í eina tíð var kallað list.

Haraldur Bjarnason, 15.5.2008 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband