Reykjavíkurheilkennið komið yfir flóann

Mér finnst slæmt að heyra þessar fréttir af bæjarpólitíkinni á Skaganum. Í gegnum tíðina hefur fólk verið nokkuð heilsteypt í bæjarpólitíkinni þar en það er eins og núna sé komið eitthvert Reykjavíkurheilkenni þarna yfir flóann. Mér finnst líka athyglisvert að í öllum fréttaflutningi mbl af þessum málum hefur aldrei verið talað við oddvita Sjálfstæðisflokksins, Gunnar Sigurðsson, um þessi mál. Hann virðist halda sig svolítið til hlés í umræðunni og Gísli bæjarstjóri, sem er ekki kjörinn bæjarfulltrúi, talar alltaf fyrir hönd meirihlutans. Þetta minnir mig svolítið á umræðuna í Reykjavík líka.

Ég man oft eftir því hér áður fyrr að atkvæðagreiðslur í bæjarstjórn á Akranesi hafi verið á skjön við starfandi meirihluta. Menn hafa oft ekki verið sammála um einstök mál þótt þeir hafi verið í sama flokki eða saman í meirihluta. Það hefur þó ekki alltaf orðið til meirihlutaslita og enn síður til flandurs á milli flokka. Burt séð frá afstöðu til þessa máls, sem deilt er um, þá finnst mér þetta, sem gerist í kjölfarið, setja ljótan blett á bæjarmálapólitíkina á Akranesi.


mbl.is Sviptingar á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Þetta er rétt hjá þér Halli.  Gísli greyið er bara gólftuska he he he he

Einar Vignir Einarsson, 15.5.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband