Hvað verður um óskhyggju Seðlabankamanna?

Eykur þetta ekki líkurnar á að ekkert verði úr þeirri óskhyggju Seðlabankamanna að húsnæðisverð lækki um 30%.? - Það að Allianz, í eigu Byrs, ætli að bjóða óverðtryggð lán, að vísu í evrum, ásamt því að Íbúðalánasjóður ætlar að bjóða lægri vexti, segir okkur allavega að vænta má einhvers lífsmarks á fasteignamarkaðinum.

Við skulum vona að þetta verði líka til þess að forsendurnar fyrir útreikningi lánskjaravísitölunnar verði skoðaðar. Löngu er kominn tími á að endurskoða það óréttlæti sem í þeim útreikningum felst. Líka spurning hvort þetta ýtir eitthvað við öðrum bönkum.


mbl.is Íhugar að bjóða óverðtryggð íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

við fylgjumst með !!!

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 21.4.2008 kl. 23:57

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Guð láti gott á vita!!

Hvenær ætli endurmatið komi svo frá "Svörtuloftum", með afsökunarbeiðni? 

Sigrún Jónsdóttir, 22.4.2008 kl. 00:20

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Segir það ekki allt sem segja þarf um stöðugildi krónunnar, að allt þurfi að vera verðtryggt og fylgja vísitölum? Þ.e.a.s. allt nema launin okkar, að sjálfsögðu.....

Lilja G. Bolladóttir, 22.4.2008 kl. 01:15

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þessi lánskjaravísitala á bara ekki rétt á sér. Hún er í raun forngripur, sem ekki hefur verið hreyft við í áratugi. Byggð á svo fáránlegum forsendum að það hálfa væri nóg. Í sjálfu sér er einhverskonar verðtrygging ekki óeðlileg en flestar þjóðir heims nota nú vexti til að stýringar. Hér þykist Seðlabankinn vera að nota vexti til stýringar en svo bætist lánavísitalan við, semsagt bæði belti og axlabönd. Þegar vísitala var bönnuð á laun af rikisstjórn Steingríms Hermannsssonar og Þorsteins Pálssonar árið 1983 var ástæðan sú að hún væri verðbólguvaldur. Það var furðulegt vegna þess að vísitala lagðist aldrei ofan á laun fyrir eftir á og var því afleiðing en ekki orsök. Það gengur aldrei eað vera með þessa lánskjarvísitölu en launin ekki tryggð til jafns. Húsnæðisverð vegur mikið í útreikningi vísitölunnar og þess vegna er það m.a. draumur Seðlabankagúrúanna að það lækki.

Haraldur Bjarnason, 22.4.2008 kl. 07:46

5 Smámynd: Hallur Magnússon

Það er misskilningur að þetta sé nýjung.  Öll gjaldeyrislán bankanna eru óverðtryggð! Þeir hafa nú þegar lánað tugi milljarða í slíkum óverðtryggðum íbúðalánum í erlendri mynt -þmt. evrum.

En fréttin um að nýr aðili sé að skoða markaðinn með það í huga að lána evrulán er jákvæð!

Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 09:18

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já en nýr að skoða. Ertu viss um Hallur að þessi bankalán í elrlendri mynt séu á föstum vöxtum til 10 ára eins og Allianz skoðar? - Hafa vextirnir ekki verið breytilegir?

Haraldur Bjarnason, 22.4.2008 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband