Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Skítur á priki

Ég hrökk nú bara við þegar ég sá byrjun þessarar fréttar:  Samgönguráðuneytið hefur greitt rúmlega 9,2 milljónir krónur til verktaka á kjörtímabilinu eða frá maí 2007 til janúarloka 2009 - Bara rétt rúmar níu millur til verktaka frá samgönguráðuneytinu. Er það þetta ekki ráðuneyti sem Vegagerðin heyrir undir með allar vegaframkvæmdirnar, sem eru unnar af verktökum? - Þetta er skítur á priki, miðað við að Gulli heilbrigði borgar tvær millur eða svo fyrir að láta segja sér til um hvernig hann eigi að lúkka í sjónvarpi.
mbl.is 9,2 milljónir í verktakagreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir sleggjan nú?

Augnablik! - Hvað á sleggjan eftir? - Búinn með Alþýðubandalagið, sem nú er hluti af Samfylkingu. Búinn með Framsókn og búinn með Frjálslynda. - Verður hann við hlið hálfbróður síns, Gunnars J. Birgissonar í Sjálfstæðiflokknum? - Varla - Össur var að vísu búinn að bjóða hann velkominn í Samfylkinguna. - Nei það er ómögulegt að segja hvað sleggjan gerir - Hann er ekki í pólitík vegna hugsjóna. - Þetta er bara vinnan hans.
mbl.is Kristinn: Trúnaðarbrestur olli afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færri mótmælendur en þeir sem fá vinnu við hvalinn

Það er heldur betur kraftur í mótmælum gegn hvalveiðum, eða hitt þó heldur. Tvenn mótmæli á dag til utanríkisráðuneytisins, sem eru þá væntanlega fjórtán á viku. Ekki þætti það merkilegt á laugardagsmótmælafundi á Austurvelli. Frá ármótum eru mótmælin orðin sex sem borist hafa til sendiráðsins í Bandaríkjunum en Kanar hafa jú gjarnan haft sig helst í frammi þegar hvalur er annars vegar. Nei mótmælin gegn hvalveiðum eru hjóm eitt og mun fleiri sjá skynsemina að baki þeirra.

Á bls. 2 í Mogganum í dag kemur fram að um 200 manns fái vinnu á sjó og í landi við veiðar langreyða og um 30 við hrefnuveiðarnar. Nú eru liðnir 56 dagar af árinu og því 112 sent mótmæli til utanríkisráðuneytisins og 28 til þriggja stærstu sendiráðanna, skv. frétt mbl.is. samanlagt 140 eða 90 færri en bara þeir sem fá vinnu við þessar "vafasömu" hvalveiðar.

Hrefna Hrefna um borð í Nirði KÓ


mbl.is Tveir mótmæla á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju spyr Geir ekki Davíð?

Af hverju spyr Geir ekki bara Davíð sjálfan að því hvaða einkahlutafélög þetta eru? Davíð hlýtur að vita það fyrst hann hendir þessu fram.
mbl.is Vill upplýsingar um fyrirgreiðslu til einkahlutafélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf samir við sig

Alltaf eru innflytjendur samir við sig. Þá gildir einu hvort um matvöru eða neysluvörur er að ræða. Fljótir upp en lengi niður.

Annars ætti nú líka að kanna grunninn fyrir vísitöluútreikningnum. Neyslumynstur fólks er að breytast. Til dæmis kom fram að meðal þeirra liða sem hækka vísitöluna nú og þar með lán fólks, er hækkun á utanlandsferðum. Svona dæmi má örugglega finna mörg til viðbótar. Verðbólgan er því ekki endilega sú sem hún er sögð núna því neyslumynstrið sem miðað er við er svo lítið 2007, enda síðan þá. 


mbl.is Lýsa eftir lækkun vöruverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Davíð þá að plata?

Var Davíð þá að plata? Trúir því einhver? Hann sem aldrei hefur tekið þátt í þessum útrásarsöng eins og glögglega kom fram í Kastljósi í gærkvöldi. Þrátt fyrir að áður hefði hann mært þessa kappa, sjá hér http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/
mbl.is Engir óeðlilegir eignaflutningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Höskuldur gleymi sér?

Ætli Höskuldur gleymi sér nokkuð núna? Skýrslan hefur verið birt opinberlega og nú er spurning hvort hann fer fram á að hún verði þýdd á íslensku. Kannski hefur hann einhverjar aðrar hugmyndir til að sýna sjálfstæði sitt núna.
mbl.is Fundur boðaður í viðskiptanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi á hann eftir að blása meira

Davíð er byrjaður að blása og blæs sem óður væri. Hann finnur sökudólga hjá fréttamönnum, eins og hans hefur alltaf verið siður. Svaraði Sigmari ítrekað með spurningu á móti og kvartað með skætingi yfir að fá ekki að tala en greip svo stöðugt fram í þegar verið var að spyrja hann.

Annars held ég að helsti kosturinn við að losna við Davíð úr Seðlabankanum verði að þá fyrst blæs hann fyrir alvöru. Þá verður hann verulega reiður og upplýsir um allt sukkið sem hann veit um. Þá verða það ekki bara Baugsmenn sem fá á baukinn, heldur allir útrásargaurarinnar og forystumenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Að vísu bara þeir sem komu til valda eftir að Davíð fór í Seðlabankann. - Þá fyrst verður gagn af Davíð fyrir þjóðina. 


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krókur á móti bragði

Hvernig væru að Íslendingar einbeittu sér að því að kaupa ekki breskar vörur og jafnvel að senda fulltrúa kaupmanna og heildsala til Bretlands og kanna hvort viðkomandi verslunarkeðjur og þeir sem selja okkur vörur tengist á einhvern hátt manndrápum í heiminum, t.d. í Írak. Yfirgangur þessara hernaðarþjóða eins og Breta og Bandaríkjanna er svo fáránlegar. Á meðan þessar þjóðir strádrepa fólk út um allan heim vilja þær ráðskast með það hvort Íslendingar veiði um fjórðung af þeim hvölum sem vísindamenn telja óhætt að veiða. Komum með krók á móti bragði.
mbl.is Breskar verslunarkeðjur mótmæla hvalveiðum Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott frumkvæði, en hver er lausnin?

Ágúst Einarsson rektor og hans fólk á Bifröst sýna enn á ný frumkvæði. Fyrst þetta er hægt á Bifröst ættu aðrir að taka sér þetta til fyrirmyndar. Við höfum fengið fréttir af hárri leigu hjá Félagsíbúðum stúdenta á Akureyri og eins á Hólum í Hjaltadal en þar á Kaupfélag Skagfirðinga íbúðirnar.

Það er hins vegar spurning hver borgar mismuninn á vísitölulánunum sem á húsunum hvíla og því sem kemur inn fyrir leiguna. Kannski er Ágúst þarna kominn með einhverja góða lausn sem hægt væri að nota fyrir aðþrengda skuldara um land allt. Hann ætti kannski að upplýsa okkur um lausnina.


mbl.is Húsaleiga lækkar á Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband