Hvað gerir sleggjan nú?

Augnablik! - Hvað á sleggjan eftir? - Búinn með Alþýðubandalagið, sem nú er hluti af Samfylkingu. Búinn með Framsókn og búinn með Frjálslynda. - Verður hann við hlið hálfbróður síns, Gunnars J. Birgissonar í Sjálfstæðiflokknum? - Varla - Össur var að vísu búinn að bjóða hann velkominn í Samfylkinguna. - Nei það er ómögulegt að segja hvað sleggjan gerir - Hann er ekki í pólitík vegna hugsjóna. - Þetta er bara vinnan hans.
mbl.is Kristinn: Trúnaðarbrestur olli afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Gunnarsson

Er ekki hægt að segja að hann sé í pólitík vegna hugsjónar þar sem hann fer ekki eftir flokkslínunni? Eða er að vera í pólitík "að hugsjón" þegar er alltaf kosið eftir flokkslínum?

Ef þetta væri "bara vinnan hans" þá færi hann nú einfaldari leið að halda vinnunni.

Birgir Gunnarsson, 26.2.2009 kl. 12:11

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það má vel túlka þetta eins og þú Birgir.

Haraldur Bjarnason, 26.2.2009 kl. 12:21

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Kristinn er orðin þaulreyndur maður í að reyna að breyta flokkum í sínu þágu, enginn vill taka mark á honum. ÆÆÆÆ. Það verður erfitt fyrir Kristinn að ná inn á þing aftur.

Nýja Ísland á að skarta nýju fólki sem hefur litla reynslu í "siðblindu".

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 26.2.2009 kl. 13:41

4 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Mér hefur nú fundist Kristinn oft skemmtilegur í sínum málflutningi, en það gengur víst ekki í íslenskri póilitík að ætla að hafa eitthvað smá öðruvísi skoðanir en flokkslínan. Hann getur kannski fengið vinnu í Hvalnum með mótmæælendum ef menn verða svo skynsamir að gera það aftur að atvinnugrein sem stólandi er á.

Grétar Rögnvarsson, 26.2.2009 kl. 17:25

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þið miskiljið þetta öll nema Birgir.. Kristinn er ekki sauður og fylgir ekki í blindni Flokknum !!

Sennilega eini þingmaðurinn með reisn á alþingi í dag.

Óskar Þorkelsson, 26.2.2009 kl. 20:19

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

óskar ég hef aldrei sagt að Kristinn væri sauður og tek undir sjónarmið Birgis. Málið er bara það að það er flokkakerfi í gildi á Íslandi og sleggjan rekst illa í flokki. Hann fer alltaf sjálfviljugur úr þessum flokkum.

Haraldur Bjarnason, 26.2.2009 kl. 20:56

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

rétt Haraldur.. en í dag er vilji almennings sá að flokkakerfið skal burt og því er Kristinn sá eini á alþingi sem fellur vel inn í það system :)

sauður = rekst vel í flokki

Óskar Þorkelsson, 26.2.2009 kl. 21:15

8 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Úbs, hafið þið reynt að strfa með Kristni ?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 26.2.2009 kl. 21:47

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Kristinn kenndi mér stærðfræði eitt sinn.. önnur afskipti af honum hef ég ekki :)

Óskar Þorkelsson, 26.2.2009 kl. 22:06

10 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég vona að þið þurfið þess ekki ?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 26.2.2009 kl. 22:17

11 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Óskar: 2+2=?

Haraldur Bjarnason, 26.2.2009 kl. 23:22

12 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Haraldur.. með því að nota reiknivél fékk ég út 4 ... er það rétt ?

Óskar Þorkelsson, 26.2.2009 kl. 23:34

13 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já það er rétt Óskar. Framsókn var það heillin.

Haraldur Bjarnason, 27.2.2009 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband