Kominn upp að öxlum

Enn hleðst skíturinn upp hjá Óskari, þessum fyrrum blaðamanni og fréttastjóra. Við ráðningu Davíðs var skíturinn kominn upp að hnjám en svei mér þá ef hann nær ekki upp að öxlum núna. Skil einfaldlega ekki hvað hann er að gera. Fagmennska blaðamannsins er ekki á háu stigi.
mbl.is Meint trúnaðarbrot til athugunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Vissi ekki að blaðamenn væru svona bláeigir.  Að nota tölvur vinnuveitanda síns til að senda boð og halda það síðan í alvöru að ekki yrði kikt í þær ef tilefni gæfist til.  Það er nú meiri barnaskapurinn í blaðamannastéttinni.

Ekki miskilja mig, ég er ekki að verja Óskar.  Bendi aðeins á það, þar sem drullan er á annað borð farin að fljóta, - er enginn óhultur.

Benedikt V. Warén, 6.10.2009 kl. 13:02

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta er nákvæmlega það sem ég er að segja Pelli. Skíturinn er að fara upp fyrir haus á honum. Barnaskapurinn í blaðamennslunni hefur líka aukist og að nota vinnutölvur fyrir einkapóst er fáraánlegt.  Tölvur voru ekki til í stærstum hluta minnar blaðamennsku.

Haraldur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband