Herveldi mótmæla drápi

Það er ótrúlegt að sjá þessi herveldi, sem eyða fúlgum fjár í að halda úti sérþjálfuðu fólki til að drepa fólk, býsnast yfir því að Íslendingar skuli nýta sér sjávardýr og reyna þannig að halda jafnvægi í lífríki hafsins. Meira að segja Bandaríkjamenn eru með í þessum hópi en engin þjóð í heimi drepur fleiri hvali en þeir, svo ekki sé talað um allt fólkið sem þeir drepa. Ég sé einfaldlega engan mun á því að drepa hval, hreindýr eða naut, svo framarlega sem ekki er gengið of nærri viðkomandi stofni.
mbl.is Sameinast um að fordæma hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ótrúleg skinvilla hjá þessum þjóðum.

Ragnar Gunnlaugsson, 6.10.2009 kl. 09:06

2 Smámynd:

Það kallast að vera skinhelgur og það eru Bandaríkjamenn þekktastir fyrir

, 6.10.2009 kl. 10:07

3 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Hvaða hvali veiða Bandaríkjamenn?

Ólafur Þórðarson, 6.10.2009 kl. 10:21

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Bandaríkjamenn veiða fullt af smáhvelum í reknet sem meðafla, eins og höfrunga og hnísur. Þessu er öllu hent dauðu í sjóinn aftur. Tvískinnungurinn er eins hjá þeim í þessu og öllu öðru.

Haraldur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 10:41

5 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Veistu hvað þetta er mikið magn af hval? Höfrungar og háhyrningar reyndar ekki skilgreindir sem hvalategund en það gildir einu svo sem. Veistu um tölur um brottkast höfrunga í BNA, svona miðað við hvað Bandaríkjamenn veiða af hval af ásettu ráði?

Ólafur Þórðarson, 6.10.2009 kl. 10:51

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hef það ekki á hreinu en það er margfalt á við Íslendinga (eflaust hægt að gúggla þetta) en þessar þjóðir telja höfrunga, hnísur og hrefnur til hvala, enda eru hrefnurnar taldar með langreyðunum í þessari yfirlýsingu þeirra, þó svo að hér hafi nú hrefnur alltaf verið taldar smáhveli eins og hnísurnar og höfrungarnir. Annars er þetta hvaladráp Ameríkana smámál miðað við manndráp þessara þjóðar.

Haraldur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 11:12

7 Smámynd: ThoR-E

Hræsni!

Fáránlegt að heyra af þessu. Þessi lönd sem hafa sent hermenn um allan heim til að stráfella fólk ... sameinast um að ráðast á lítið land sem er að nýta auðlindir sínar.

Jahérna...

ThoR-E, 6.10.2009 kl. 11:49

8 Smámynd: ThoR-E

p.s

Þeir veiða hvali í Alaska til dæmis.

The Alaskan Eskimo hunt is one of five permitted by the International Whaling Commission (IWC)

[...]

The US is an anti-whaling whaling nation - it hunts whales and is against whaling elsewhere," fumes Rune Frovik from the High North Alliance, which campaigns for the rights of whalers and sealers in northern latitudes.

"This is at the outset an irreconcilable and contradictive policy, and has made the US worthy of accusations of double standards and hypocrisy."

http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/6698501.stm

ThoR-E, 6.10.2009 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband