Og hvað með það?

"Fangageymslur Akraness fullar," virkar örugglega sem fyrirsögn. Ég ímynda mér að fangaklefarnir á Akranesi séu svona fjórir til sex. Hér hafa verið þúsundir manna um helgina að skemmta sér, bæði heimamenn og aðrir. Það getur vel verið að einhverjir hafi misst stjórn á sér en mér finnst gestir á þessum svokölluðu Írsku dögum hafa hagað sér vel. Það eru tjöld út um allt og vegna þess að unglingar geta ekki tjaldað á tjaldstæðinu þá finna þeir sér aðra staði. Þar er ekki eftirlit og þess vegna búa menn til vandamál með of miklum reglum. Treystum unga fólkinu og það skilar því til baka. 
mbl.is Fangageymslur Akraness fullar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er ekki lengur aldurstakmark á tjaldsvæðin... var bara í fyrra en var tekið af í ár...

ónefnd (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 09:50

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei en það voru strangar reglur m.a. að þau eru fjölskyldutjaldstæði og þess vegna urðu krakkarnir að fara annað. T.d. tjölduðu nokkrir unidr stúkunni við íþróttavöllinn.

Haraldur Bjarnason, 5.7.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband