Er þetta ekki vélsleði?

Snjósleðar eru margskonar. Það eru til magasleðar og skíðasleðar (stundum kallaðir sparksleðar) og svo eru til snjóþotur, hestasleðar o.s. frv. Það apparrat sem var á ferðinni á Skjálfanda og sagt er frá í þessari frétt er ein tegund þessara sleða og heitir vélsleði. Það er orðið ótrúlega algengt að þessi vélfákur sé nefndur snjósleði, sem er víðfemara orð en svo að það segi eingöngu til um þetta tæki. 
mbl.is Húsvískur ofurhugi á Skjálfanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þetta er vélsleði :) ekki spurning

Óskar Þorkelsson, 5.7.2009 kl. 02:12

2 identicon

Jú, satt hjá þér. Þetta er ekki snjósleði heldur vélsleði. Svo er ekki rétt farið með. Þetta hefur verið gert áður. Fór ekki Árni Kópsson á vélsleða út í Viðey? Eða fór hann á Heimasætunni þangað? Svo var farið að hluta yfir Kleifarvatn, það er á Youtube, var gert þegar Topgear menn komu hingað og svo var einhver sem fór inn eftir öllu Skorradalsvatni og sneri við. Hann komst næstum alla leið til baka en það bilaði eitthvað í sleðanum þannig að hann missti ferð og hefði sokkið ef ekki hefðu verið gerðar ráðstafanir fyrirfram.

Burkni (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 08:50

3 identicon

Mikið rétt þetta er vélsleði og mér er ekki vel við að fólk sé að nota samheitið snjósleði yfir vélsleða.  Ég sé alltaf fyrir mér fullorðna menn að vera að fara að leika sér á snjóþotum þegar þeir ætla að fara á fjöll með sína snjósleða.

Jón H. Þórisson (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband