Er annarra kosta völ?

Ætli það sé annarra kosta völ fyrir okkur en að sitja undir tilskipunum AGS úr þessu? Lilja Mósesdóttir sagðist vilja skila þessu láni frá sjóðnum en svo virðist sem þaggað hafi verið niður í hennar hugmyndum. Ef lán frá AGS er nauðsyn þá verðum við, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að sitja undir tilskipunum þaðan.
mbl.is Sitjum ekki undir tilskipunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lán frá AGS er ekki nauðsynlegt. Lausnin er einfaldlega sú að ríkið taki krónubréfin eignarnámi, í nafni þjóðarhagsmuna (gagnvart hagsmunum hinna örfáu) og byrji ekki að vinda ofan af gjaldeyrishöftum fyrr en því er lokið. Bréfin geta þá og gengið upp í Icesave.

Eignarnámi er beitt reglulega í nafni almannhagsmuna; jarðir bænda eru teknar eignarnámi hvort heldur er undir vega- eða álversframkvæmdir. Stundum er almannahagurinn í þess háttar aðgerðum illgreinanlegur eða takmarkaður og ég er almennt ekki talsmaður þessa. En ef ekki var fyrir hendi réttlæting á þessu nú við þessar aðstæður varðandi krónubréfin, hvenær þá?

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 09:56

2 identicon

Að vísu verður að bæta við að við venjulegt eignarnám koma bætur fyrir eignina...en við yrðum víst að sleppa því í þessu tilfelli .

En án gríns þá væri kannski hægt að láta þá hafa bundin ríkiskuldasbréf í staðinn. Þegar búið væri að hætta samstarfi við AGS og skila láninu frá sjóðnum aftur gætum við keyrt vextina vel niður og þá þyrfti lítið að greiða af vöxtum til þess eigendahyskis sem á þessi bréf.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 10:01

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er bara spurning Þorgeir hve vel krónubréfaliðið er varið í kerfinu en auðvitað er þetta hárrétt sem þú segir með eignanámið.

Haraldur Bjarnason, 15.5.2009 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband