Ísing í Reykjavík - Tími nagladekkjanna liðinn

Ísing í Reykjavík í morgun? Var það ekki einmitt í gær sem hamrað var á því í öllum fjölmiðlum að tími nagladekkjanna væri liðin. Reykjavík er þó sá staður á Íslandi þar sem minnst er þörfin fyrir þau. Er ekki rétt að horfa aðeins til hnattstöðu Íslands þegar reglur sem þessar eru settar? - Vona að maðurinn hafi ekki slasast alvarlega. 
mbl.is Bílvelta á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þessi vatnsleki sem er búinn að vera þarna í 2 eða 3 daga(var ekki hérna um páskana) hafi ekki haft talsvert um ísinguna að segja. Mjög staðbundið vandamál svo ekki sé meira sagt :/

karlkarl@mailinator.com (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:15

2 identicon

Síðast þegar ég vissi þá gerðu nagladekk akkúrat ekkert í ísingu, verri ef eitthvað er því að naglarnir hafa ekkert til að grípa í á henni svo að þeir skauta bara, best er bara að vera á góðum, mikið skornum dekkjum, nema um blautan ís sé að ræða, því það er jú þar sem nagladekk virka best.

Andri (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:19

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

karlkarl. Vatnsleki gerir engum neitt nema að frost komi til. - Andri. Einu tilfellin sem nagladekk virka almennilega er í ísingu. Naglarnir gera ekkert gagn í snjó en þeir halda bílnum stöðugum í ísingu.

Haraldur Bjarnason, 16.4.2009 kl. 09:25

4 identicon

Nei en ef engin væri vatnslekinn þá væri ísingin engin, svo þarna mætti kannski segja að hálkan hafi birst mjög óvænt ;)


Karl (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:44

5 identicon

Andri: Þetta er öfugt, nagladekk eru EINU dekkin sem gera eitthvað í ísingu, naglarnir stingast ofaní ísinn og ná þannig gripi. Önnur dekk ss harðkorna, loftbólu og hvað það nú heitir alltsaman virka betur en nagladekk við flestar aðstæður NEMA í ísingu, þá eru öll dekk gagnslaus nema nagladekkin.

Baldur (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:48

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hárrétt Baldur

Haraldur Bjarnason, 16.4.2009 kl. 10:25

7 identicon

Klárlega nýtast nagladekk best í ísingu og hálku, en tilgangslaus í snjó og þá öfugt farið með heilsárs/lofbóludekk.

Ætli nafni minn hafi ekki bara eitthvað verið að ruglast á ísingu og snjó

AndriR (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband