Hve margir hvalir hefðu drepist?

Hvar er Árni Finnsson nú og öll hin svokölluðu umhverfisverndarsamtök, sem hafa verið að mótmæla hugsanlegum hvalveiðum Íslendinga? Af hverju mótmæla þessi samtök ekki umferð kjarnorkukafbáta og það margra stórra á sama svæði? Hve margir hvalir hefðu drepist í Atlantshafi ef hafið hefði orðið geislavirkt eftir þennan dátaleik neðansjávar? Þá hefðu ekki bara drepist hvalir, allt lífríkið er í hættu út af þessum skrípaleik stórþjóðanna. Var ekki annars sendiherra Breta í hópi þeirra sem afhentu mótmæli hér á landi um daginn? Hann og hans fólk ætti að líta sér nær.
mbl.is Óskuðu upplýsinga um árekstur kjarnorkukafbáta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir þetta. Hvað eru þessir fjandans kafbátar að gera þarna ef þeir trufla hvalina? Þessi dýraverndarsamtök verða að stand sig betur.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.2.2009 kl. 23:52

2 Smámynd: Þórbergur Torfason

Verðugt umræðuefni Halli. Þyrftum að taka betur snúning á þessu málefni. Þarna eru hættulegustu menn heimsins í dátaleik. Okkur ber brýna nauðsyn að láta rödd okkar heyrast.

Þórbergur Torfason, 17.2.2009 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband