Ein Manhattan íbúð

Úr því sem komið er þá er sennilega best að leyfa þessari loðnu, sem nú er úti fyrir Suðurlandi, að synda hjá til hrygningar. Það er án efa nóg af loðnu í sjónum en Hafró er máttlaus í leit sinni og hefur aldrei getað leitað að nokkrum fiski að viti. Gleymum loðnuvertíð þetta árið. Hún snýst hvor sem er bara um einn milljarð, tvo eða þrjá. Svona svipað og Jón Ásgeir setur á íbúðina sína í Nýju Jórvík. Það tekur því ekki að eyða olíu og vinnu í eina Manhattan íbúð. 
mbl.is Vilja hefja loðnuveiðar strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Við erum samstíga í dag Halli minn...bara með sitt hvorn vinkilinn

Sigrún Jónsdóttir, 15.2.2009 kl. 11:29

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

það er undarlegt ástand á heimsmörkuðum þessa stundina svo .. kannski er bara best að leifa loðnunni að drepast svona einu sinni náttúrulegum dauðdaga.. því það er allsendis óljóst hvort afurðirnar seljist.

Óskar Þorkelsson, 15.2.2009 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband