Hvað vill hann upp á dekk?

Hvurn andsk.... vill þessi karlskarfur upp á dekk. Ætli hann eigi ekki meiri sök á kreppunni eftir að hafa setið með Davíð í Viðeyjarstjórninni heldur en nokkurn tímann Ingibjörg Sólrún. Nei Jón Baldvin á bara að setjast inn á eitthvert elliheimilið, ef pláss er laust, frekar en vera að blása eitthvað núna. Það er þó virðingarvert að hann skuli bera eitthvert traust til Jóhönnu núna, betra seint en aldrei
mbl.is Jón vill að Ingibjörg víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Jónsson

Það er erfitt fyrir svona tækifærissinna þegar fjölmyðlar hætta að elta hann,þá treður hann sér fram með einhverja hugmynd sem hann veit að vekur athygli hversu vitlaus sem hún er.

Björn Jónsson, 14.2.2009 kl. 16:34

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ef leita skal eftir þeim sem bera ábyrgð á bankahruninu, þá verður að teljast að þar beri kannski JBH hvað stærstan hlut. JBH barðist fyrir inngöngu okkar í EES og náði því og kallaði það eins og frægt er að við hefðum "fengið allt fyrir ekkert" . Íslensku einkabankarnir störfuðu eftir reglum sem sami JBH fékk festar í sessi með inngöngu okkar í EES.

Svo kemur hann fram nú eins og hvítþveginn engill sem ekkert illt leiddi yfir þessa þjóð. JBH barðist einnig fyrir stofnun Samfylkingarinnar og þannig ber auðvitað Samfylkingin ábyrgð á regluverkinu sem bankarnir störfuðu eftir. Augljóst er að JBH treystir á það að kjósendur hafi gullfiskaminni, en svo er ekki með öll okkar. Við munum einnig eftir ýmsum subbuskap JBH í meðferð almannafjár og veisluhöldum fyrir flokksholla menn sína sem og eiginkonunnar.

Ég held að ég afþakki frekari þjónustu JBH fyrir almenning. Hann hefur kostað þessa þjóð nóg nú þegar.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.2.2009 kl. 18:17

3 Smámynd: Hörður Einarsson

Best geymdur sem sendiherra á Caiman-eyjum. (gæti verið rangt stafsett)

Hörður Einarsson, 14.2.2009 kl. 19:09

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Hörður,ekki vilja Caiman-eyjum(segi líka,gæti verið rangt stafsett) svo slæmt...

Halldór Jóhannsson, 14.2.2009 kl. 19:13

5 Smámynd: Hörður Einarsson

Hvar þá?

Hörður Einarsson, 14.2.2009 kl. 19:31

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Já, sennilega væri fínt að geyma Jón Baldvin einhvers staðar víðsfjarri íslenskum stjórnmálum Finnst reyndar alltof vænt um gamla fólkið til að getað hugsað mér að klína honum í sambúð með þeim. Sé líka lítið virðingarvert við tilboð Jóns Baldvins. Ekki síst í ljósi þess hvernig hann fór með Jóhönnu í formannsslag einum hér í denn.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 14.2.2009 kl. 19:48

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

~Cayman~ eyjar eiga ekki Jón Baldna skilið, þarna býr ágætiz fólk.

Steingrímur Helgason, 14.2.2009 kl. 20:01

8 Smámynd: Þórbergur Torfason

Jóni Baldvini er óskað langt í fjarska. Manngarmurinn er nú þegar kominn langt í fjarska svo ekki þarf frekari óskir þar um. Hann hefur álíka mikið vægi í íslenskri pólitík og Davíð Oddsson semsagt "lítið".

Hugsið ykkur þá tvo saman í árabát rífast um hvor ætti að róa útí Viðey og hvor til baka. Hvað heitir aftur myndin með Jack Lemon og hinu gamla krumpudýrinu, "Crumpy old men" eða eitthvað. Væri ekki tilvalið að benda Hrafni Gunnlaugssyni á þennan möguleika sem útrás í kvikmyndagerð.

Þórbergur Torfason, 14.2.2009 kl. 22:53

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Góð tillaga Þórbergur

Haraldur Bjarnason, 15.2.2009 kl. 07:04

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

JB talar eins og hann eigi flokkinn

Hólmdís Hjartardóttir, 15.2.2009 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband