Yfirklór

Það leysir engin mál að sameina heilbrigðisstofnanir. Reksturinn þarf jafn mikla peninga þótt eitt nafn verði á mörgum stofnunum. Fyrir mörgum árum voru allar heilbrigðisstofnanir á Austurlandi sameinaðar undir nafni Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Þrátt fyrir það hefur verið tuga milljóna taprekstur á því batteríi og sér ekki fyrir endann á því. Guðlaugur Þór getur ekki klórað yfir eigin skít  með þessu. Það þarf að tryggja heilbrigðiskerfinu peninga af almennu skattfé en ekki með því að rukka þá sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Til dæmis mætti setja á hátekjuskatt sem rynni beint í heilbrigðiskerfið. Það væri táknrænt.
mbl.is Heilbrigðisstofnanir sameinast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Bíddu aðeins Haraldur. Heldurðu að Guðlaugur geri ráð fyrir að hægt sé að reka heilbrigðiskerfið með hagnaði.

Er ekki talsverður hugtakaruglingur orðinn þarna. Þessir guðsvoluðu stuttbuxnadrengir eru alltaf á skráargatinu að leita að spesíum hjá öllum öðrum en sjálfum sér.

Í hvert skipti sem þessi þarna Guðlaugur Þór hefur opnað sinn hvopt, hefur sannast hið fornkveðna að "öll samkeppni er góð svo lengi sem ég þarf ekki að taka þátt í henni".

Þórbergur Torfason, 7.1.2009 kl. 14:51

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég geri ekki ráð fyrir því að heilbrigðiskerfið verði rekið með hagnaði í skilningi kapitalismans. Hins vegar höfum við alltaf hagnað af góðu heilbrigðiskerfi í mannlegum skilningi. Guðlaugur Þór hefur eflaust aðrar hugmyndir í þessum efnum en ég. Hann telur líklega að þetta sé hægt að reka eins og einhverjar líkamræktarstöðvar. Við vitum líka að samkeppni er góð svo framarlega sem allt gengur upp, eins og hjá bönkunum. Þegar hún klúðrast þarf almenningur að taka við.

Haraldur Bjarnason, 7.1.2009 kl. 15:00

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það er væntanlega talsverður sparnaður fólginn í þessum ráðstöfunum en veldur því líka að fólk mun þurfa að fara lengra til lækninga og því líklega fyrst og fremst verið að vellta kostnaði yfir á almenna borgara. Sem sagt lítill sem enginn þjóðhagslegur sparnaður en talsverður sparnaður fyrir hið opinbera.

Héðinn Björnsson, 7.1.2009 kl. 15:38

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Héðinn. Enginn sparnaður, það er ljóst. Ekki víst að fólk fari lengra til lækninga, sennilega verða þessar stofnanir eftir sem áður opnar.  Við borgum þetta allt fyrir rest, það er ljóst.

Haraldur Bjarnason, 7.1.2009 kl. 15:59

5 Smámynd: Jóhanna Hafliðadóttir

Langt og langt - ung kona hér á Egilsstöðum þurfti að skreppa á Norðfjörð til að fæða barn núna um jólin. Ég er nú svo fordekruð mér þykir það langt. En hún var smart að eiga ungann fyrir áramót. Slapp við 6.000 kr. gjaldið. (Eða kemur það ekki líka á barneignir?)

Jóhanna Hafliðadóttir, 7.1.2009 kl. 16:47

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Fæðingardeildinni á Egilsstöðum var lokað fyrir 5 árum eða svo eftir sameiningu í Heilbrigðisstofnun Austulands. Þá þótti nóg að hafa bara eina fæðingardeild á Austurlandi. Mörg dæmi eru um að barnshafandi konur hafi verið fluttar frá Egilsstöðum til Norðfjarðar, þaðan aftur til Egilsstaða og í flug til Reykjavíkur eða Akureyrar. Svona er nú sparnaður Jóhanna.

Haraldur Bjarnason, 7.1.2009 kl. 17:11

7 Smámynd: Eyrún Huld Haraldsdóttir

Það er til skammar að ekki sé hægt að eiga börn á Fljótsdalshérði, ég skil ekki alveg hvað er svona dýrt við þann rekstur, er ekki ein ljósmóðir og einn læknir allt sem þarf? Ljósmóðir var a.m.k. nóg hér í gamla daga... - en sem betur fer þurfa konur sem leggjast inn til barneigna ekki að greiða þetta nýja innritunargjald, það var tekið skýrt fram í fréttinni sem ég las.

Eyrún Huld Haraldsdóttir, 7.1.2009 kl. 22:35

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta gerir heilbrigðisþónustuna dýrari fyrir neytandann en sparar ríkinu eitthvað.   Það verður þá að hafa samgöngur í lagi.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.1.2009 kl. 23:10

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Svona er þetta bara. Sameining er í skjóli sparnaðar. Á Egilsstöðum þýddi þetta samdrátt, vegna sjúkrahússins á Norðfirði, sem er út úr korti í dag. Sama gerist hér fyrir norðan: Dalvíkingar, Ólafsfirðingar, Siglfirðingar, Húsvíkingar og fleiri lenda í sama tjóninu. Svona gæjar eins og Guðlaugur horfa á landkortið en gleyma því að klifra þarf yfir fjallvegi.

Haraldur Bjarnason, 8.1.2009 kl. 08:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband