Er þetta ekki brandari?

Er þetta ekki brandari? - Félag Sjálfstæðiskvenna að veita ráðgjöf vegna efnahagsástandsins. "Sérfræðingar á sviði, velferðamála, almannatrygginga, skattamála, fjármála heimila og félagsmála verða á staðnum og taka á móti fólki sem vill nýta sér þessa þjónustu." - Ætli þetta séu sömu sérfræðingarnir og hafa verið að veita síðustu ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins ráðgjöf? - Kannski kunna þessir sérfræðingar ráð til að koma fólki út úr þessu. Þeir og þeirra flokkur kunnu alla vega ráðin til að koma fólki í þessa krísu.
mbl.is Ókeypis ráðgjöf vegna efnahagsástandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

segir nokkuð - er þetta ekki frekar ótraust

Jón Snæbjörnsson, 5.12.2008 kl. 15:33

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er algengur misskilningur hjá vinstrisinnuðu fólki að sjálfstæðismenn hafi ekki áhuga á að velferðarmál séu í lagi. Ef þið lituð einhverntíma út fyrir Marx-Lenin leshringinn og kynntuð ykkur fordómalaust hvað aðrir gera og hugsa, þá myndu augu ykkar opnast. Vinstrimenn hafa ekki einkarétt á félagsmálum, þó þeir haldi það.

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.12.2008 kl. 16:21

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

félagslegum málum, átti þetta að vera

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.12.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: TómasHa

Sumir eru "fyrst og fremst vangaveltur út frá fréttum líðandi stundar" á meðan aðrir reyna að gera eitthvað í ástandinu. Það væri nær að eitthvað af þessu fólki sem fer niður í bæ helgi eftir helgi gerði eitthvað í málnum líka. Þetta er örugglega það besta sem ég hef séð í kreppunni. Þarna er fólk í sjálfboðavinnu að reyna að hjálpa samlöndum sínum.

Skiptir þig máli hvaðan gott kemur?

TómasHa, 5.12.2008 kl. 16:27

5 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Já þetta er frábært framtak. Meðal upplýsinga sem hægt er að fá þarna er hvar hægt er að leita sér sálfræðiaðstoðar fólki að kostnaðarlausu.

Kolbrún Baldursdóttir, 5.12.2008 kl. 16:39

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Halli, þú ert sennilega að misskilja þetta.  Þa er áfallahjálpin sem þarna verður í boði sem skiptir hvað mestu, s.s. " þetta var nú ekki hægt að sjá fyrir", "þetta er jú alheims lausafjárkrísa", "eftir á að hyggja" og vasaklútar og svoleiðis.

Ekki vissi ég að hugmyndafræði Marx og Lenin væri höfð að leiðarljósi í Sjálfstæðisflokknum þó mig hafi reyndar lengi grunað að hann væri síðasti kommúnistafokkurinn sem fer með völd í Evrópu.

Magnús Sigurðsson, 5.12.2008 kl. 18:31

7 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Nei Haraldur, þetta er ekki brandari. Þetta er frábært framtak af hálfu Hvatar. Innan vébanda Hvatar starfa fjöldi kvenna með margvíslega sérþekkingu. Þær bjóða sérþekkingu sína til þeirra sem eftir því leita á ráðgjafarstofunni.

Dögg Pálsdóttir, 5.12.2008 kl. 18:34

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Eins og ég sagði í færslunni að lokum að þá er Sjálfstæðisfólk sennilega rétta fólkið til að gefa ráð til að komast úr klípunni. Það var jú Sjálfstæðisflokkurinn ásamt framsókn sem einkavinavæddi bankana og útbjó reglurnar fyrir útrásargæjana. Nú liggur leiðin til baka og þá hlýtur sama fólkið að rata best.

Haraldur Bjarnason, 5.12.2008 kl. 19:35

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki rétt Haraldur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi útbúið reglurnar fyrir bankana. ESB og smningur okkar um EES ber ábyrgð á því.

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.12.2008 kl. 22:18

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gunnar EES setur grunnreglur.........en ætlast er til að hvert land setji eigin reglur og noti EES reglurnar sen grunn. Það gleymdist hér.  Þar liggur sökin.

Hólmdís Hjartardóttir, 5.12.2008 kl. 23:45

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það er til upptaka þar sem DO segir að best sé aðhafa sem minnstar reglur um bankana.....við erum að súpa seyðið af því núna

Hólmdís Hjartardóttir, 5.12.2008 kl. 23:54

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er reyndar ekki "ætlast" til þess Hólmdís.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2008 kl. 00:02

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

OK Gunnar það er "val".   Hér var valið að setja engar reglur og svo kenna sumir EES um.

Hólmdís Hjartardóttir, 6.12.2008 kl. 00:30

14 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, það er ljóst að engar reglur voru langt í frá að virka.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2008 kl. 01:39

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gunnar   við erum held ég sammála

Hólmdís Hjartardóttir, 6.12.2008 kl. 03:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband