"Ókeypis" vídeóleiga fjallar um fjölmiðla

Sniðugt á Íslandi! Þessi "ókeypis" vídeóleiga með umfjöllun um fjölmiðla. Ekkert er ókeypis í dag. Við borgum þeim sem auglýsa. Horfði á þetta um tíma en gafst upp á að horfa á hnakka eða vangasvip viðmælenda, þótt stjórnendur hafi sést þokkalega. Ekkert til af fagmennsku tæknimanna við sjónvarp. Hljóðið var í góðu lagi þannig að þetta hefði átt að vera í útvarpi en ekki í sjónvarpi. - Svo er þetta fólk að krefjast réttlætis í samkeppni. Hvaða samkeppni? Kannski er þetta sjónvarp framtíðarinnar.
mbl.is Rætt um fjölmiðla á SkjáEinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Verð að viðurkenna það að ég er kominn með svo mikið antipat á alþingismönnum að ég hafði ekki geð í mér til að horfa á "ellefu milljarða" Illuga og VG Katrínu.  RUV er ferlegt á fimmtudögum svo þeir eru jafngóðir hjá mér eins og í den, sjónvarpslausir.

Magnús Sigurðsson, 3.12.2008 kl. 22:47

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Nennti ekki að horfa á þetta.

Víðir Benediktsson, 3.12.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Maggi það er fínn þáttur með Agli Helgasyni á RÚV á fimmtudögunm sem kallast Kiljan. Liklega verður Egill ekki rekinn. Hann er á of háum launnum til þess að Palli geri það.

Haraldur Bjarnason, 3.12.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Ég sá þennan þátt auglýstan í gær og ég sem fjölmiðlafræðinemi ákvað að taka mér klst í pásu frá prófalestrinum til að horfa á þáttinn. Náði að halda mér við efnið þegar Páll, Ari og Sigríður voru að berjast á málefnum RÚV. Áhuginn hvarf aftur á móti alveg eftir fyrsta auglýsingahléið.

Eitt sem ég hef ekki skilið við okkar landi er hvers vegna allt sem er gert þarf að vera pólitískt. Hef enn ekki fundið svar við þessari spurningu.

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 4.12.2008 kl. 03:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband