Kemur þetta á óvart?

Auðvitað hlýtur það að koma á óvart hjá Hafró að síld úr íslenska vorgotsstofninum skuli vera til hér við land. Þetta er væntanlega jafn óvænt og að einhver þorskur skuli vera hér við land. Hvar hafa þessir menn verið? Er ekki bara bullandi síld úti fyrir Austfjörðum? Þar er ekki leitað. Menn hafa verið uppteknir undanfarin ár í verðbréfabraski. Ekkert spáð í sjávarútveg sem skapar tekjurnar!
mbl.is Norsk-íslensk síld í Jökulfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Það er nú svo merkilegt að það kemur þeim aldrei neitt á óvart, hafa skýringar á öllu þó svo þeir viti lítið Halli, sannaðu til þetta kemur þeim ekki á óvart.

Grétar Rögnvarsson, 24.11.2008 kl. 15:16

2 Smámynd: Árni R

Það er alveg merkilegt hvað þessir skipstjórar geta fundið af síld og loðnu en Hafró sér aldrei neitt.  Svo leyfa þeir sér að kalla sig fræðinga

Árni R, 24.11.2008 kl. 15:50

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Merkilegt !!

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 24.11.2008 kl. 18:57

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já, svona er þetta búið að vera í áratugi. Sjómenn hafa síðustu árin verið að forðast þorskinn vegna kvótaleysis en hann er allsstaðar. Allt of mikið af honum og hann étur undan sér hér við strendur landsins vegna fæðuskorts. Svo skilja fræðingarnir ekkert í því af hverju nýliðun er lítil. sama með síldina. Hún er að gera vart við sig á ólíklegustu stöðum og nú er það vorgotssíldin, sem við byggðum allt á hér áður fyrr, hún er komin aftur. Menn kalla hana norsk-íslensku síldina en þetta er sá stofn sem síldarævintýrið byggðist á um miðja síðustu öld. Nú þarf að setja kraft í veiðar til að halda öllum stofnum við. Það þarf líka að veið hval svo hann éti þetta ekki allt frá okkur. 

Haraldur Bjarnason, 25.11.2008 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband