Ekki trúverðug hringavitleysa

Hingað til hafa fréttirnar snúist um að þjóðirnar sem hefðu hug á að lána okkur gætu ekki gert það fyrr en samþykkt Alþjóða gjaldeyrissjóðsins lægi fyrir. Nú getur sá sjóður ekki samþykkt lán fyrr en lán frá þessum þjóðum liggja fyrir. Eru það ekki bara Bretar og Hollendingar sem standa í veginum með fulltingi Þjóðverja? - Alla vega er þessi frétt um hringavitleysuna ekki trúverðug.
mbl.is IMF-lán strandar á öðrum lánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ja þetta er að verða hið versta mál - velti fyrir mér stundum hvort réttu mennirnir séu að vasast í þessu, ekkert með pólitík að gera enda snýst þetta ekki um það á þessu stigi - á við td hvort Ásmundur og aðrir ágætis menn sem koma næst þessu séu réttu mennirnir, hafa þeir taktikina sem þarf, veit ekki

Jón Snæbjörnsson, 12.11.2008 kl. 08:51

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég held að það þurfi að skipta um hausa..........

Hólmdís Hjartardóttir, 12.11.2008 kl. 08:53

3 identicon

Það eru reyndar bara Hollendingar núorðið, þar sem Bretar eru búnir að gefa það út að þeir styðja það að Íslendingar fái lánið, enda voru þeir aldrei opinberlega á móti því eins og Hollendingar, heldur kom það frá Hollendingum að Bretarnir styddu þá í þessu.

En það virðist almennt álit þarna hjá IMF að Íslendingar verði að leysa þessa deilu fyrst.

Andrir (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband