Ofstopamenn með vopn hingað

Er það ekki sjálfgefið að hleypa ekki þessum ofstopamönnum með drápstólin sín hingað til lands. Ofstopamenn með vopn eru ekki góðs viti. Þeir geta verið í sínum dátaleik annarsstaðar. Ég trúi því ekki að utanríkisráðherra taki ekki af skarið og segi Bretunum að vera heima hjá sér. Það er líka ótrúlegur tvískinnungur af Bretum að ætla nú að fara gæta þjóðarinnar sem þeir hafa með yfirgangi og ofstopa dæmt sem hryðjuverkamenn. Ef þeir koma hingað þá ættum við að kyrrsetja þoturnar þeirra eins og þeir gerðu við eignir Íslendinga í Bretlandi.
mbl.is Miklar efasemdir um breska loftrýmisgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það kemur ekki til greina að fá Bretana hingað......

Hólmdís Hjartardóttir, 12.11.2008 kl. 10:12

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Hvað eru þeir að verja??  Eina yfirvofandi loftárásin í desembermánuði er af hálfu jólasveinsins.

Benedikt V. Warén, 12.11.2008 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband