Nota þessa peninga í uppbyggingu
29.10.2008 | 22:03
Hvernig á peningalaus ríkissjóður að auka atvinnuleysisbætur? Væri ekki nær að nýta peningana til uppbyggingar? - Ég hlustaði á söngkonuna Björk í Kastljósi í kvöld og hún nefndi fullt af hugmyndum og sprotafyrirtækjum sem gætu tekið fólk í vinnu en vantaði peninga. Hvernig væri að setja peninga í að þessi litlu fyrirtæki gætu ráðið til sín fólk, sem er á atvinnuleysisbótum og þau borgi því svo 10-50% af launum og fái þannig ódýran og góðan vinnukraft sem jafnframt væri á óbreyttum bótum ríkisins. Svo væri frekar að auka bætur til þeirra sem vilja fara í nám enda höfum við alltaf not fyrir betur menntað fólk. Það er betra að nýta góða starfskrafta en láta þá sitja aðgerðarlausa heima á bótum. Notum peningana í uppbyggingu fólks og fyrirtækja.
Stjórnvöld hækki atvinnuleysisbætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þegnskylduvinna, skóflur & hakar...
Steingrímur Helgason, 29.10.2008 kl. 22:30
Moka snjó, mokið meiri snjó sagði Steini spil.
Haraldur Bjarnason, 29.10.2008 kl. 22:37
Sá ekki Kastljós, en þessi 10-50% hugmynd er alls ekki slæm. Mikið betri en að hækka bætur úr tómum ríkissjóði.
Villi Asgeirsson, 29.10.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.