Fékk hann gjaldeyri?

Var bara að spá í hvernig Steingrími og kollegum gengi að fá gjaldeyrisyfirfærslu á þetta Norðurlandaráðsþing og hvað þeir fá fyrir krónuna. Hafa ekki íslenskir námsmenn á Norðurlöndunum verið í erfiðleikum með að fá einhverja peninga fyrir ónýta krónu?
mbl.is Norðurlöndin sameinist í aðstoð við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Grímur er í kosningabaráttu og er að reyna að vera með

Jón Ingi Cæsarsson, 26.10.2008 kl. 17:03

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já, Jón Ingi, það hefur ekki farið dullt að undanförnu Grímur-Skalli er í kosningabaráttu en óneitanlega tekst honum betur upp en Ömma.

Haraldur Bjarnason, 26.10.2008 kl. 17:08

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Líklega en fyrir hver tvö atkvæði sem Grímur aflar..talar Ömmi 2/3 af.

Annars er þetta hefðbundið hjá þeim... allir eru sammála um að aðkoma alþjóðagjaldeyrissjóðs sé nauðsynleg og það eina í stöðunni þá eru Vinstri grænir við sama heygarðshornið... eru á móti eins og venjulega.

Jón Ingi Cæsarsson, 26.10.2008 kl. 17:16

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Steingrímur var nú alltaf kallaður afi þegar hann var ungur piltur í MA.  Ég ber samt meira traust tilhans en margra áhinu háa Alþingi  að minnsta kosti er hann kemmtilegri en obbinn.   Steingrímur hefur bara farið með nesti með sér þarna út, sviðasultu og harðfisk.

Hólmdís Hjartardóttir, 26.10.2008 kl. 17:22

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

skemmtilegri

Hólmdís Hjartardóttir, 26.10.2008 kl. 17:23

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þið segið nokkuð

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 20:39

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Halli, ekki dizza nafna, við Steingrímar yfirleitt höfum skemmtilegar meiníngar um pólitíkur vorar....

Steingrímur Helgason, 27.10.2008 kl. 00:06

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Steingrímur var bekkjarbróðir systur minnar í MA. Held að hann hafi stundum sungið með henni um Steinar í berjamó í partíum. Þarf að spyrja hana um afa nafngiftina þegar ég hitti hana næst.

Annars sé ég hann alltaf fyrir mér sem bónda í Þistilfirðinum að stússast við ær og huga að girðingum, get ekki að því gert.

Greta Björg Úlfsdóttir, 27.10.2008 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband