Burt með Bangsa

Þetta er athyglisvert viðtal við Jóhann R. Benediktsson og aðstoðarmann hans. Af þessu virðist eitt ljóst. Það er einfaldara að dómsmálaráðherra segi af sér heldur en að hafa þá upplausn sem ríkir í lögreglumálunum í stærstu embættunum. Hafi Björn Bjarnason ekki manndóm í sér til þess þá á forsætisráðherra að skipta honum út. Karlinn er betur geymdur á eftirlaunum. Ekki nóg með að yfirmenn lögreglumála séu hver upp á móti öðrum. Sumir andsnúnir ráðherra en aðrir slefandi fyrir honum heldur er löggæsla á sjó í lamasessi. Varðskipin bundin við bryggju og ráðherra ráðalaus.
mbl.is Flótti úr lögreglu Suðurnesja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

"og ráðherra ráðalaus." ráðherralaus.

Jón Ingi Cæsarsson, 24.9.2008 kl. 18:46

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Af með Bangsa og hann getur tekið með sér Halla ríkissjóðs, þeir verða góðir saman í einhverjum hermannaleik.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.9.2008 kl. 20:07

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Hafsteinn. Þessi nafni minn þarna í ímynduðu embætti einhvers óþarfs ríkislögreglustjóra má svo sannarlega fjúka líka. En þeir eru auðvitað báðir á sínum stað núna vegna ættaveldis íhaldsins. - En Jón Ingi því miður er þessi ráðherra ekki ráðherralaus. Hann er þarna í skjóli þeirra ráðherra sem ráða í ríkissstjórninni, Geirs og Sollu.

Haraldur Bjarnason, 24.9.2008 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband