Í Kjaradóm með þetta, hann hefur reynst ríkisstarfsmönnum vel

Enn er allt í hnút. Segi bara enn og aftur fyrst ríkisstjórnin hefur ekki manndóm í sér að leysa þetta mál þá er einfaldast að hún leggi það fyrir kjaradóm. Kjaradómur hefur reynst örlátur og skilningsríkur við þá ríkisstarfsmenn sem hann úrskurðar um launakjör fyrir, eins og æðstu embættismenn þjóðarinnar.
mbl.is Verkfall hefst á miðnætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

jebb

Hólmdís Hjartardóttir, 10.9.2008 kl. 18:14

2 Smámynd: Gulli litli

Nákvæmlega...

Gulli litli, 10.9.2008 kl. 18:58

3 identicon

Kjaradóm? Ótrúlegt rugl er þetta. Hann hefur aldrei reynst neinum örlátur eða skilningsríkur nema þeim allra hæstu fyrir. Öðrum hefur hann jafnan skammtað skít úr hnefa. Það versta sem hent gæti ljósmæður væri að þeirra mál færi fyrir karadóm. Og hananú. Áfram ljósmæður!

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 19:31

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Heyrðu Sleggjudómari. - Hefurðu ekki fylgst með? - Síðast þegar hann dæmdi færði hann forseta, hæstaréttadómurum, seðlabankastjórum og ýmsum öðrum ein til tvenn ljósmæðralaun á mánuði í uppbót ofan á miljónirnar sem þeir höfðu fyrir....hvar hefurðu verið??? - Ertu kannski að meina gerðardóm sem hefur haft tekjur af sjómönnum í gegnum tíðina? - Það eru tveir óskyldir dómar.

Haraldur Bjarnason, 10.9.2008 kl. 20:50

5 identicon

Góður Halli eins og þín er von og vísa, auðvitað í Kjaradóm með kjaramál ljósmæðra. Þar hefur verið ríflega skaffað til æðstu embættismanna þjóðarinnar eins og þú segir - til þeirra sem maður hélt að hefðu nú vel til hnífs og skeiðar!! og þeir skammast sín ekki neitt

Jón Ingi Kr. (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 09:06

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Auðvitað er ekkert annað að gera Jón Ingi. þegar allt er í þroti þá á auðvitað að láta þá sem kunna að leysa málin gera það. Ég man ekki eftir að æðstu embættismenn þjóðarinn hafi nokkurn tíma þurft að berjast fyrir svo sjálfsögðum hlutum sem ljósmæður gera nú.

Haraldur Bjarnason, 11.9.2008 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband