Hreindýrin hafa haft það gott

Þetta er ótrúleg veiði, hátt í tólf hundruð dýr. Mér finnst ekki langt síðan kvótinn var um 500 dýr. Þetta sýnir bara hvað hreindýrin hafa haft það gott undanfarin áratug því veiðikvótinn er alltaf ákveðið hlutfall af stofnstærð en talið er úr lofti á hverju ári. Manni finnst líka hreindýr verða meira áberandi á láglendi með hverju árinu sem líður. Hér áður fyrr sáust þau ekki á láglendi nema í hörðum árum og svo tarfar síðla vetrar þegar kýrnar reka þá frá sér eftir að þeir hafa gagnast þeim. Eflaust næst nánast allur kvótinn eins og Jóhann Gunnar segir.
mbl.is Búið að fella 1185 hreindýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er rétt. Man þá tíð að það þurfti heilmikla leit að dýrum, stundum dögum saman en nú þarf varla að beygja úf af þjóðvegi 1

Víðir Benediktsson, 9.9.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Vildi að það væri eitt hreidýr í kistunni minni.  Annars er móðir mín úr Eyjafirði og man eftir hreindýrum heima á túni. 

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 22:55

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hreindýr.......átti þetta að vera.........á reyndar bita

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 22:56

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Víðir má alveg fá að vita að ég þurfti í sumar að beygja útaf þjóðvegi 1 til að skemma ekki góðann jólamatarhezt annara.

Vegöxlin á lélegasta parti þezza hringvegar okkar hélt blezzunarlega.

Steingrímur Helgason, 9.9.2008 kl. 23:06

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Með þessu áframhaldi fara þau að sjást í Þingeyjarsyslum og Eyjafirði en helv....á ég erfitt með að átta mig á því að móðir þín hafi séð hreindýr í túninu í Eyjafirði, Hólmsdís. Það er hæpið að það hafi gerst á síðustu öld, kannski einverjir tarfar villst...en tæplega þau voru orðin svo fá þá......jú kannski það voru einhver nokkur eftir á Norðurlandi og Suðurlandi....síðasta öld, sú tuttugasta..er að hugsa...bíddu annars... hvað ertu annars gömul??

Haraldur Bjarnason, 9.9.2008 kl. 23:07

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Steingrímur. Þessir jólamatarheztar hafa orðið margri sjáflrennireiðinni að bráð á síðustu árum, sérstaklega eftir að mabikaður Landsvirkjunarvegur kom á Fljótdalsheiði og Blöndalsbrautin um Háreksstaðleið í Jökuldalsheiði. Mér skylzt samt að löggan láti dysja þá skrokka í stað þess að nýta allt annað en það sem marið er. Þetta er náttúrlega ósvinna. 

Haraldur Bjarnason, 9.9.2008 kl. 23:11

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

mamma er fædd 1939.........og fullyrðir þetta með jólamatarheztana.............ég er auðvitað svo hundgömul að ég get ekki sagt frá því....kann ekki að segja svona háar tölur.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband