Hátæknisjúkrahús fylgi flugvelli

Tek undir þessi mótmæli Vinstri grænna í Skagafirði. Ef Reykjavík ætlar að standa undir nafni sem höfuðborg þarf að hafa flugvöll þar. Ef þessar hugmyndir meirihluta hreppsnefndar í Reykjavík ganga eftir á ríkið einfaldlega að endurskoða uppbyggingu stjórnsýslunnar og heilbrigðisþjónustunnar. Er til dæmis rétt að byggja hátæknisjúkrahús í Reykjavíkurhreppi án flugvallar? - Er ekki bara rétt að byggja það þá í Keflavík fari innanlandsflugið þangað og flytja helstu opinberu stofnanir þangað líka.
mbl.is VG í Skagafirði mótmælir flutningi Reykjavíkurflugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er afar athyglisvert! Hvernig í ósköpunum ætla menn að "flytja" flugvöllinn. Ef það tekst er það mesta verkfræðilega afrek allra tíma. Er ekki réttara að segja að leggja eigi flugvallarsvæði undir íbúðabyggð og finna flugstarfseminni annan stað. Að tala um að flytja eigi flugvöllinn minnir svolítið á brandarann í Útvarp Matthildi þar sem til stóð að flytja Tjörnina upp á Árbæjarsafn.

Kveðja,

sbs

Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 11:47

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Man eftir þessu með stífelsið í tjörnina í útvarpi Matthildi Sigurður Bogi. Annars var ég nú ekki búinn að taka eftir þessari fyrirsögn á fréttinni, aldrei þessu vant. Auðvitað flytja menn ekkert flugvöllinn enda nefni ég það aldrei í þessum pistli. Það er miðstöð innalandsflugsins sem verður flutt ef hugmyndir hreppsnefndarmann í Reykjavíkurhreppi ganga eftir.

Haraldur Bjarnason, 26.8.2008 kl. 12:41

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Kannski væri bara fínt að fara með allan pakkan til Keflavíkur? Ekki galið???

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 26.8.2008 kl. 12:44

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

það er nákvæmlega þetta sem sumir Landráðaskagabúar eru ekki að skilja. Allt sem er í þeirra hreppi er bara þeirra mál og kemur ekki öðrum við þó mannvirki og stofnanir séu í þjóðareign. Utanbæjaraularnir geta bara átt sig og hvað kemur Reykvíkingum við þó einhver sveitamaður þurfi að komast hratt og vel í höfuðborgina. Hins virðist þeim sjálfum koma allt við ef landsbyggðin tekur upp á þeim óskunda að  bjarga sér svo sem byggja stór fyrirtæki eða virkjanir í sínu héraði, þá verður allt vitlaust á kaffihúsunum í 101 

Víðir Benediktsson, 26.8.2008 kl. 18:35

5 identicon

Skagafjarðarkommarnir sem trúa því að hægt sé að flytja flugvöllinn - rétt eins og Törnina. Mikil er trú þeirra.

En almennt talað: Reykavíkur nýtur þess að vera höfuðborg og þá ætti þeim sem um borgarmálin véla að vera útgjaldalítið að leggja pláss á móti undir flugvöllinn. Þó ætti að vera lítið mál að "flytja völlinn"; koma einhverjum brautum hans betur fyrir og leggja að hluta út í Skerjafjörðinn svo rýmkist aðeins um land í Vatnsmýri.

Annars er ég frómt frá sagt orðinn ofsalega þreyttur á þessari umræðu um flugvöllinn sem verður áfram næstu árin. Snakk um annað er innistæðulítil málflundakarp smáfugla í borgarstjórn.

Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 23:21

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Haraldur, veistu nokkur hvor vinstri græníngjinn í 'Skaffó' héraði stakk þezzu fram ?

Steingrímur Helgason, 26.8.2008 kl. 23:28

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Held það hafi verið þeir báðir Steingrímur.

Haraldur Bjarnason, 26.8.2008 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband