Hárrétt ákvörðun

Auðvitað var hárrét að leggja hald á þennan bíl. Drengurinn sem ók honum hefur greinilega enga skynsemi í lagi til að hafa svona mörg hestöfl til að stjórna, hámark er vespa. Það vekur hins vegar athygli að í fyrstu hafi honum bara verið veitt tiltal en eftir að myndbandið var skoðað var farið að kanna málið betur. Trúði löggan ekki skólafólkinu sem hringdi? - Jú hann var undir áhrifum fíkniefna og var að leika sér með einhver 200 eða 300 hestöfl inn á skólalóð með fullt af krökkum í nágrenninu. Er ekki allt í lagi og hvers vegna er hægt að fara með bílinn á skólalóð og upp að dyrum eins og sést á myndunum? Eiga þær ekki að vera lokaðar farartækjum?


mbl.is Hald lagt á sportbílinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Myndbandið  var rosalegt.  Mér þykir líka slæmt að svona fíkniefnahundur er að sýna sig á grunnskólalóð.

Hólmdís Hjartardóttir, 25.8.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað var þetta hárrétt ákvörðun og vonandi að "drullusokkurinn" dragi nú einhvern lærdóm af þessu, en ættu ekki skólalóðir að vera alveg lokaðar þannig að svona atburðir gætu ekki átt sér stað?

Jóhann Elíasson, 25.8.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband