Minn maður!

Ég verð að segja það eins og er. Mikið djöfull er hann flottur karlinn. Hann er alltaf að launa samfélaginu. Alltaf að skila einhverju sem honum finnst hann skulda samfélaginu. Þetta er snilld hjá honum. Hann var úthrópaður, settur í fangelsi ásamt fleirum, dæmdur og síðan sýknaður, reis upp aftur. Nú er hann flottur og Þóra kona hans líka(hún er auðvitað af Thorsurum komin og þaðan er Akranesblóðið). Þau eru frábær, jafnvel þótt hann sé KR-ingur, það er bara eitthvert arfgengt vandamál. Ég hef alltaf átt góða vini í KR., þótt fæddur sé og uppalinn á Akranesi. - Björgólfur er minn maður!  
mbl.is Gestastofa Tónlistar- og ráðstefnuhúss opnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já er það ekki góður er hann.

Ef við fengjum annan álíka væri okkur borgið.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 11.7.2008 kl. 00:18

2 Smámynd: Gulli litli

Hann er töffari...

Gulli litli, 11.7.2008 kl. 03:42

3 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Sammála Halli, hann er flottur.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 11.7.2008 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband