Þeir sem eru læsir og skrifandi lesi þetta

Ég hvet alla sem þokkalega eru læsir og skrifandi á íslenskt mál að lesa þennan texta sem mbl.is ber á borð. Þvílíkt klúður. Það er svo mikið af hortittum og orðskrípum í þessu svo ég tali nú ekki um langlokuna sem þessi svokallaða frétt er og lítið sem ekkert situr eftir. Nú þarf mbl.is heldur betur að fá til sín skrifandi fólk. Oft var þörf en nú er nauðsyn.


mbl.is Seinheppinn þjófur á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Hafliðadóttir

Svona greindur maður eins og þú ætti að hafa fattað að þetta er nú bara tekið beint upp úr löggufréttum - án nokkurrar snyrtingar! En Mogginn er greinilega ekkert að vanda sig  með veffréttirnar - samber fréttina um plánetuna "Merkús..." sem er að minnka.

Jóhanna Hafliðadóttir, 6.7.2008 kl. 22:50

2 identicon

Þetta var hroðaleg lesning, hvaðan sem hún kom. Manni datt helst í hug að það væri verið að djóka í manni, þetta var nánast móðgun við sæmilega lesandi og skrifandi fólk.

assamar (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 00:08

3 Smámynd: Gulli litli

Ætladi ad lesa thetta en er hvorki læs né skrifandi......

Gulli litli, 7.7.2008 kl. 04:42

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hvað ætli margir aðilar hafi lesið þetta?

Hólmdís Hjartardóttir, 7.7.2008 kl. 11:05

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Atarna var ljóta lesningin.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.7.2008 kl. 12:15

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er engu líkara en textinn hafi verið skrifaður beint upp af frásögn barns, sem var nýbyrjað að tala og hefur verið mjög mikið niðri fyrir.

Jóhann Elíasson, 7.7.2008 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband