Stimpilgjöldin fyrst í forgangsröðina.....iPod seinna

Ætli það skipti svo miklu máli fyrir allan almenning í landinu hvað iPod spilari kostar? Tvennt annað en raftæki er nefnt í fréttinni; stimpilgjöld og uppgreiðslugjöld lána. - Er nú bara ekki rétt að forgangsraða í þessum málum? - Tappa af óvissunni á íbúðamarkaði og leggja af þennan fáránlega skatt sem stimiplgjöldin eru og það strax. Taka síðan uppgreiðslugjöld lána fyrir en iPod og önnur raftæki mega svo koma þar á eftir.

 


mbl.is Verð á iPodum mun lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heh já þetta er auðvita alveg fáránleg forgangsröðun en samt svo táknrænt fyrir íslenskt samfélag í dag, og ég gæti jafnvel trúað að það sé fullt af fólki sem hefur mestar áhyggjur af verði á Ipod!

AndriR (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 12:21

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú jú Kenny auðvitað er það jákvætt að lækka vörugjöld á rafmagnstækjum og rétt hjá þér að áherslan í þessari frétt er á það. Ég get hins vegar alveg trúað ríkisvaldinu til þess, eins og Andri bendir á, að forgangsraða í sömu röð og í þessari frétt. iPodinn fyrst svo verði hitt seinni tíma mál. Ef fólk kemst ekki inn í húsnæði, meðal annars vegna stimpilgjaldanna, okurvaxta og lítilla peninga í umferð hefur það lítið með dýrustu rafmagnstæki að gera. Rafmagnstæki í dag eru miklu minni útgjaldaliður við stofnun heimilis heldur en þau voru fyrir tæpum 30 árum þegar ég stóð í þeim sporum. það má líka alvega hugsa sér að skipta þeim meira í flokka, fella niður vörugjöld af þeim nauðsynlegust eins og eldavélum, ísskápum og þvottavélum. Alltaf finnst mér að iPodin eigi að vera aftastur í forgangsröðinni. 

Haraldur Bjarnason, 21.6.2008 kl. 12:46

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Mikið rosalega er þetta rétt hjá þér, Haraldur minn. Hérna myndi vera sagt: Get your priorities str8, m8!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.6.2008 kl. 12:47

4 Smámynd: Gulli litli

Heyr heyr......

Gulli litli, 21.6.2008 kl. 13:46

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Gulli og Helga. - við erum af sömu kynslóð og tölum sama tungumál.-Annars er iPot flott uppfinning sem ég hefði viljað eiga fyrir 20-30 árum

Haraldur Bjarnason, 22.6.2008 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband