Er ekki til þess ætlast?

Eldur í gasgrili. - Athyglisvert!- Eru þessi gasgrill ekki einmitt til þess gerð að logi í þeim.- Þegar meira en fyrirsögnin er lesin verður ljóst að eldurinn náði í klæðningu og fleira sem hann átti ekki að ná í. - Eins gott að þarna var gaskútur úr plasti þvi stálkútur hefði líklega sprungið með talsverðu trukki.
mbl.is Eldur í gasgrilli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jaherna! góð athugasemd en fyrirsögn fréttarinnar er samt ennþá betri

Haraldur Bjarnason, 20.6.2008 kl. 23:43

2 identicon

Hefði ekki verið til hæfis einnig að hafa fréttina þannig að allt hefði komið fram,því skrúfað var fyrir gasið,grillið var ekki í notkun og enginn heima.

Enginn (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 00:06

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ef þetta er rétt "Enginn" þá hefði það auðvitað átt að vera svo. Fréttir mbl.is eru hins vegar óútreiknanlegar eins og fyrirsagnirnar....það finnst mér þær einnig vera þessar útigaseldavélar .....held mig við kolin áfram!

Haraldur Bjarnason, 21.6.2008 kl. 00:11

4 identicon

Ég veit að það var enginn heima og grillið var ekki í notkun.

Enginn (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 00:19

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Enginn heima skrifar Enginn. Var Enginn þá heima???

Hólmdís Hjartardóttir, 21.6.2008 kl. 00:55

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Enginn skrifar að Enginn hafi verið heima, þá hlýtur Enginn að hafa verið heima!

Sigrún Jónsdóttir, 21.6.2008 kl. 01:11

7 identicon

Enginn (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 02:19

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þið Hólmdís og Sígrún eruð snjallar að sjá þetta, örugglega nýkomnar af kvöldvaktinni, þrælferkar í hugsun. Þetta verður allt mjög dularfullt. Fyrst Enginn var heima, kveikti hann þá upp í fjandans útigaseldavélinni. Og ef Enginn hefur kveikt á græjunni er líklega Enginn grunaður um íkveikju

Haraldur Bjarnason, 21.6.2008 kl. 03:14

9 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.6.2008 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband