Keppendur í sundmóti ísbjarna skila sér á land

Þá hefur annar keppandinn í sundmóti ísbjarna þetta árið skilað sér á land og spókar sig í æðarvarpi norður við Hraun á Skaga. - Hvað gera menn nú?- Friðaður ísbjörn að gæða sér á afkvæmum friðaðra fugla. Nú er úr vöndu að ráða. - Ætli Hjörtur dýralæknir á Egilsstöðum sé klár með byssuna og svæingarlyfin? - Hann kann að svæfa birni og fleiri stórar skepnur, með reynslu frá Norður-Svíþjóð.

Bangsi er rólegur enn og slakar á sæll og glaður eftir æðareggjamáltíð. - Verður hann skotinn svæfingarskoti eða banaskoti?


mbl.is „Þar sem er einn er von á öðrum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Hafliðadóttir

... og heldurðu Halli,  að bóndinn á Hrauni fái bætur ef æðarfuglinn styggist og kemur ekki aftur næsta vor?

Fúlt að sjá þetta um fréttastuldinn en maður getur nú samt verið glaður - Moggatetrið vísaði allavega í Skessuhorn - það hefur nú stundum gleymst að vísa í heimildir. Kær kveðja

Jóhanna Hafliðadóttir, 16.6.2008 kl. 20:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvernig í ósköpunum á að fanga bangsann og hvað á svo að gera við hann?  Það væri kannski ráð að fá Árna Finnsson og einhverja "kaffihúsanáttúruverndarsinna" til þess að lokka bangsa inn í gám, hann yrði varla neitt órólegur fyrr en hann væri búinn að klára þá, en hvað svo?  Er þetta lið virkilega svo barnalegt að halda að það sé hægt að umgangast ísbjörninn eins og eitthvað gæft, ljúft og meðfærilegt gæludýr, veit það ekki að þetta er eitt mesta "drápstæki jarðarinnar" og er efst í fæðukeðjunni hvar sem það er statt?

Jóhann Elíasson, 16.6.2008 kl. 20:33

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Mæli með því að liðið sem lét verst síðast mæti á staðinn og græi þetta eins einfalt og það nú virtist samkvæmt því sem liðið lét úr úr sér og borgi svo brúsann. Það getur ekki verið mikið. Eitt net og smá flugferð með gæslunni ef marka má bullið í Álfheiði Ingadóttur um daginn.

Víðir Benediktsson, 16.6.2008 kl. 20:47

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Jóhanna. Hann fær örugglega engar bætur þótt bangsi sé búinn að stúta æðarvarpinu í orðsins fyllstu merkingu. - Þetta með ritstuldinn. Moggatetrið vísaði í fyrrihlutanum í Skessuhorn en kláraði svo fréttina orðrétt frá mér. - Ég er búinn að vera hér í rúma viku og þetta er nánast daglegt brauð að sjá texta. Mér ofbýður ósvífnin. - En ég er sammála ykkur Jóhann og Víðir. Nú ætti að fá þá sem hæst létu yfir hinum bangsanum til að fara norður og fanga bangsa. Koma honum svo til síns heima, hvar sem það er. Þau hljóta að vita þetta og Björgúlfur Thor er tilbúinn að borga.

Haraldur Bjarnason, 16.6.2008 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband