Hrefnan hefur sporð
11.6.2008 | 21:12
Það var kostulegt að hlusta á fulltrúa ferðaþjónustunnar í fréttum útvarps í kvöld þar sem hún kvartaði yfir því að ekki sæjust hrefnur í Faxaflóa. - Allt er þetta að hennar áliti hrefnuveiðunum að kenna.- Gerir þetta fólk sér ekki grein fyrir að hrefnan hefur sporð og leitar þangað sem hún hefur það best? - Eins og kemur fram í þessari frétt er nægt síli og mikið líf í sjónum aðeins 30 mílum utar og þar er auðvitað hrefnan eins og henni er tamt í eðlilegu árferði í sjónum. - Einhverra hluta vegna datt mér togararall Hafró í hug og ályktanir um stærð þorsksstofns út frá því að toga á sömu slóðum í áratugi án tillits til þess að þorskurinn hefur sporð líkt og hrefnan og leitar auðvitað þangað sem ætið er mest hverju sinni.
,,Þær eru þar sem maturinn er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
HAFRÓ hefur verið bent á það í fjölda ára að þetta "togararall" þeirra og sú ofuráhersla sem þeir leggja á það við stofnstærðarmælingar, sé bara tóm þvæla en á þeim bæ er ekki hlustað á aðra jafnvel þótt færð séu góð rök fyrir gagnrýninni. Ekki vilja þeir viðurkenna að "kúrsinn" hefur verið rangur í u.þ.b aldarfjórðung.
Jóhann Elíasson, 12.6.2008 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.