Farið hefur fé betra

Farið hefur fé betra - Varla getur það verið að Ingibjörg Sólrún sakni mikið vinslita þessarar amerísku stríðskerlingar, sem virðist ekki meta mannslíf mikils. Það er bara hið besta mál ef tekist hefur með þessu að reita hana til reiði og alla hennar meðreiðarsveina. Tvískinnungurinn og falsið er svo mikið frá þessu liði að það þrætir fyrir þrælahaldið og pyntingar í fangabúðunum á Kúbu en hefur á sama tíma miklar áhyggjur af því að Íslendingar skjóti nokkur smáhveli. Svo við minnumst nú ekki á öll mannvígin sem Condolezza og co standa fyrir víða um heim.
mbl.is „Faux pas" í samskiptum við Rice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Bandaríkjastjórnir hafa haft hvern sérvalda leppinn hérna af öðrum í stól utanríkisráðherra eins og kjölturakka í bandi síðustu áratugina en sú hefð virðist vera að rofna með tilkomu ISG. Myndir þú ekki fyrtast ef hundurinn þinn hætti að hlýða þér og færi jafnvel að gera sér dælt við nágrannann?

Baldur Fjölnisson, 9.6.2008 kl. 13:36

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...góður, Baldur

Haraldur Bjarnason, 9.6.2008 kl. 21:16

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Þið talið báðir eins og út úr mínum munni

Lilja G. Bolladóttir, 10.6.2008 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband