Eðlilegt framhald af góðum árangri

Það er náttúrulega borðliggjandi að ráða Ólaf Þ. Stephensen sem ritstjóra Morgunblaðsins og aðalritstjóra Árvakurs. Undir hans stjórn hefur dagblaðið 24 stundir vaxið og dafnað og því eðlilegt framhald að hann taki við Mogganum eftir að Styrmir hættir. Nú bíður Ólafs það hlutverk að rífa Morgunblaðið upp til fyrri virðingar.

Að vísu verð ég aldrei sáttur við þetta nafn á blaðinu; 24 stundir. Það eru bara áhrif úr ensku en yfir þetta eigum við ágætis orð í íslensku sem er sólarhringur.

En til hamingju Óafur og Moggamenn.


mbl.is Ólafur nýr ritstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Áttu von á ferkum vindum með Ólafi ?

Mér fannst Styrmir allur að koma til upp á síðkastið !

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 23.4.2008 kl. 16:27

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Guðrún Þóra miðað við þær framfarir sem urðu eftir að hann tók við Blaðinu, sem síðar varð 24 stundir. Já já Mogginn hefur ekki verið í tómu tjóni en óneitanlega hefur setið eftir í samkeppninni.

Einar Elí. Já í íslenskunni höfum við ágætis orð sem er sólarhringur yfir þetta tímaskeið.

Haraldur Bjarnason, 23.4.2008 kl. 16:34

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Einar! kannski eru þetta líka dönsk áhrif eins og þú bendir á. Veit ekki hvort kom á undan hér eða þar.

Haraldur Bjarnason, 23.4.2008 kl. 16:43

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já en Haraldur þeir verða að halda Heimdallar-stefnunni er það ekki?

Þeir geta nú ekki bara gert það sem þeir vilja...eða hvað?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 23.4.2008 kl. 17:10

5 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég er nú ekki sammála þér Kristinn að það hafi alltaf verið faglegt. Morgunblaðið hefur staðið með sínum mönnum það er sjálfstæðimönnum, það hefur alls ekki alltaf verið faglegt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 23.4.2008 kl. 17:39

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Er viss á því að undir stjórn Ólafs verður Mogginn með fagmennskuna í fyrirrúmi. Hvort flokksstimpillinn fer alveg af honum, það verður að koma í ljós en hann hefur nú verið að þynnast nema í einstaka dálkum og svoldið áberandi stundum í áherslunum. Styrmir hefur náttúrlega sýnt sínar sterkustu hliðar Kristinn, þegar hann hefur aðeins verið að klóra í flokkinn. Guðrún það er rétt að hann hefur staðið með sínum mönnum, það kemur fram í því hverju hann hampar hverju sinni.

Haraldur Bjarnason, 23.4.2008 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband