Norðlenskir bílstjórar mótmæltu líka

Norðlenskir bílstjórar mótmæltu líka á Akureyri í dag og mátti sjá tugi bíla keyra um götur bæjarins á   milli kl. 16 og 17. Farinn var hringur um bæinn og ekið á 5-10 kílómetra hraða. Fleiri myndir eru í albúmi hér á síðunni.   IMG_0486                                                                                       
mbl.is Bílstjórar loka Ártúnsbrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð að viðurkenna að ég hef enga samúð með trukkabílstjórum.  Þetta eru mennirnir sem keyra þá bíla sem eru hvað hættulegastir á þjóðvegunum, ásamt því að skemma þjóðvegina meira en góðu hófi gegnir.  Þegar ég svo heyrði í þessum herramönnum í dag, þar sem ég sat í skólanum að streða við bækurnar, þar sem þeir þeyttu flautur sínar endalaust, þá fékk ég hugmynd.  Afhverju í veröldinni lögreglan kallaði bara ekki út aukavakt, og skrifuðu út sektir á mótmælendurna, og jafnvel tvær sektir. Annars vegar fyrir að þeyta flautur að nauðsynjalausu sbr 31. gr umferðalaga og svo man ég ekki hvar hin greinin er, en hún fjallar um of hægan akstur.  Þar sem um borgaralega óhlýðni er að ræða, þá verða þeir sem í henni taka þátt, að vera tilbúnir að taka út þá refsingu sem þeim ber, í þessu tilfelli með greiðslu sektar.  Ég er ekki viss um að þeir myndu mótmæla aftur á morgunn ef Geir Jón myndi bretta upp ermarnar.

Að þessu slepptu, er ég ekki viss um að þetta séu mennirnir sem eigi að mótmæla.  Þetta eru allt atvinnubílstjórar, sem fá sinn frádrátt vegna reksturs bílsins.  Þeir eru því að borga minna en almennir borgarar.  Ég verð bara að viðurkenna að ég hef fremur litla þolinmæði fyrir fólki sem keyrir um á 5 kmh.  Þessi mótmæli þeirra beinast eingöngu að almenningi, valda pirringi meðal þeirra, en ekki að þeim sem einhverju ráða.  Nær væri að stöðva bílana fyrir framan höfuðstöðvar olíufélagana og þeyta lúðra þar, í stað þess að ónáða hin almenna borgara, svona ef þeir ætla að mótmæla á annað borð.

 Svo mörg voru þau orð, að sinni!

Sá sem veit betur (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband