Er þetta rétt?

Trúi ekki að sú sé raunin með þessu frumvarpi að Jón ætli að setja fótinn fyrir nýsköpun í landbúnaði í sínu eigin kjördæmi og það hjá samflokksmanni sínum í Dölunum eins og fram kemur í fréttinni: Erpsstaðir, sem framleiða ís, skyr og osta, framleiða nú þegar úr um 20-30.000 lítrum og áætla að þegar fullt skrið sé komið á framleiðslu verði um að ræða 30 - 40.000 lítra framleiðslu, og þá sé ekki talið með öll sú mjólk sem fer í vöruþróun.

Trúi hreinlega ekki að þetta sé rétt.


mbl.is Telja mjólkurfrumvarp hindra nýsköpun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Bjarnason leggur ekki Þránd í götu nýsköpunar-landbúnaðar! Það er ég alveg viss um!!!

Við megum ekki gleyma því að milliliða-þjófa-"heildsölur", sem í dag er (Bónus og co og var áður kallað Sambands-klíkan) mótmæla hátt núna.

Bændur fá nánast ekkert fyrir sína framleiðslu því heildsölur og verslunar-milli-liðir hirða allt sem hægt er, og hirða allan gróða! Flestir bændur eru bændur vegna köllunnar en ekki góðra launa, og vinna þrotlausa vinnu myrkranna á milli!

Og svona hefur þetta verið svo lengi sem ég man, og ég er dálítið gömul!

Þetta sem Jón Bjarnason er að gera er tækifæri fyrir venjulega, heiðarlega bændur til að geta komist út úr einokun þessara milliliða! Þannig mun verð á landbúnaðarvörum lækka umtalsvert til neytenda!

Nú geta jafnvel áhugasamir nýbúar komist í að verða bændur, sem ekki var nokkur lífsins leið hér áður fyrr! Svona sé ég þetta og fagna því að allir hafi möguleika á að lifa af sinni heiðarlegu vinnu og framleiðslu á nánast lífrænt ræktuðum mat! Tími til kominn! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.8.2010 kl. 23:52

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Kvóti eða ekki kvóti það er spurningin.

Sigurður Haraldsson, 12.8.2010 kl. 23:52

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Rétt Anna.

Sigurður Haraldsson, 12.8.2010 kl. 23:53

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já Sigurður þetta er mál sem hefur pólitískar hliðar eins og flest mál. M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.8.2010 kl. 00:01

5 Smámynd: Dexter Morgan

Tvær aths. við skrif Önnu: Á hvaða forsemdum telur þú að verð til neytenda muni lækka ? Ég held að svona afturhalds og einokunar-frumvarp muni hækka verðið, þeir sem eru jú í þessari starfsstétt, vita að þeir hafa enga samkeppni og munu ekki fá hana.

Hitt er varðandi nýliðun í stéttinni. Ef ég kaupi mér jörð á morgun og ætla að fara að framleiða landbúnaðarvörur, þ.m.t. mjólk, hvað geri ég þá ? Hvað er næsta skref hjá mér, eftir að hafa fest kaup á jörð. Þarf ég ekki að semja við einhvern annan bónda, sem "á" framleiðslurétt á mjólk, um að "kaupa" af honum mjólkurkóta. Og afhverju ætti hann að vilja selja væntanlegum keppinaut kóta, hann fær jú, greitt fyrir væntanlega framleiðslu frá Ríkinu (okkur).

Ég held að þú vaðir í villu og svíma í þessu máli. Þetta er nákvæmlega sama staðan og í sjávarútvegi, þó ég kaupi mér bát á morgun, þá má ég ekki veiða einn einasta fisk, nema "kaupa" hann af öðrum í þeim geira. Nýliðun getur aldrei orðið meðan þessi háttur er hafður á.

Mbk.

Dexter Morgan, 13.8.2010 kl. 00:49

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Dexter þetta er hárrétt hjá þér en bara svo sárt að kyngja því vegna þess að kvóti er búin að ganga kaupum og sölu undanfarin ár og ef hann verður tekin af fara flest öll fyrirtækin á hausinn þá verður engin framleiðsla né veiði allavega tímabundið þegar greinarnar eru að rétta sig af! Við höfum ekki efni á því en það er til einn möguleiki það er að afnema kvóta í smá skömmtum til að laga kerfið því að kerfið eins og það er upp byggt gengur ekki það eru vonandi allir vitibornir menn búnir að sjá

Sigurður Haraldsson, 13.8.2010 kl. 10:01

7 Smámynd: Dexter Morgan

Það er fátt um svör núna; Anna !

Dexter Morgan, 13.8.2010 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband