Afturkalla strax veiðiheimildir Norðmanna

Er ekki, í ljósi þess sem Norðmenn gera núna, eðlilegt að afturkalla loðnuveiðiheimildir þeirra í íslenskri lögsögu og það strax?

ESB og Norðmenn hafa ekki viljað semja við Íslendinga um makrílinn á þeirri forsendu að sá fiskur gangi ekki inn í íslenska lögsögu. Hvaða fisk eru þjóðirnar þá að tala um?

Þetta er nákvæmlega sama staða og uppi var um vorgotssíldina fyrir nokkrum árum. Norðmenn hafa alltaf verið Íslendingum verstir í samningamálum.


mbl.is Ekkert nýtt við hótanir Norðmanna og ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæll Haraldur.

Ég held að það borgi sig ekki að afturkalla veiðiheimildir Norðmanna.  Það gerir bara illt verra.  Frekar að halda áfram að veiða makrílinn þar til þeir verða til neyddir að semja um kvóta.

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 5.8.2010 kl. 12:33

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú ég held að það sé ágætis umhugsunarefni fyrir Norðmenn að afturkalla veiðiheimildir þeirra hér. Við notum sömu rök og segjum að þessi loðna gangi ekki í þeirra lögsögu. Auðvitað höldum við áfram að veiða makrílinn samt sem áður.

Haraldur Bjarnason, 5.8.2010 kl. 15:24

3 Smámynd: Sigurjón

Nei.

Norðmenn fá úthlutun hér, rétt eins og við fáum úthlutun í þeirra lögsögu.  Þetta var samið um á sínum tíma og ber að halda því.  Tilkoma makrílsins hér er hins vegar nýlunda og því eigum við að veiða hann þar til Norðmenn og ESB gefur sig og hleypir okkur að samningaborðinu.

Sigurjón, 5.8.2010 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband