Sýndarmennska að sleppa laxi

Breiðdalsáin er vaxandi laxveiðiá en hve mikið vit er í því að sleppa löxum sem búið er að dauðþreyta? Með fréttinni er mynd af veiðimanni með laxinn í fanginu og enginn getur haldið á fullfrískum stórlaxi svona.

Veiðimenn berjast lengi við þessa laxa, þeir þreytast og særast við atganginn, bæði vegna agnsins og líka af því að berjast við steina og klappir. Það er miklar líkur á að þessir laxar drepist innan stutts tíma frá því að þeim er sleppt. Það er því ekkert vit í að dauðþreyta lax og sleppa síðan. Þetta er bara sýndarmennska.

Svo á bara að halda þá gullvægu reglu í heiðri að við sportveiðimennsku eigi bara að veiða sér til matar.


mbl.is Stórlaxar í Breiðdalsá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mikið er ég sammála þessari grein hjá þér Halli en hingað til hefur maður verið úthrópaður sem einhver villimaður ef maður hefur látið það eftir sér að mótmæla þessum "veiða sleppa trúarbrögðum" sem virðast hafa "tröllriðið" ákveðnum sértrúaróp veiðimann og leigutaka ákveðinna veiðisvæða.

Jóhann Elíasson, 19.7.2010 kl. 17:13

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég hef samt aldrei séð dauðan lax í laxám.. en að sleppa laxinum er samt tilgangslaust

Óskar Þorkelsson, 19.7.2010 kl. 19:05

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Jói þetta virðast vera orðinn einhver trúarbrögð og menn telja sig vera eitthvað umhverfisvæna með þessu og þeir séu að tryggja framtíð stórra laxa. Óskar það eru mörg nýleg dæmi um laxabein við tófugreni í nágrenni laxveiðiáa. Tófan syndir ekki út í árnar eins og minkurinn að veiða lax. Þannig að þetta er eitt af því sem bendir til að lax sé að reka á fjörur. Svo þarf ekki að sjást mikið af honum þótt hann drepis. Eitthvað rekur niður árnar í sjó fram og fuglar hirða annað. Mér finnst þetta fáranlegt rugl að dauðþreyta fiskinn og sleppa honum svo og á ekkert skylt við alvöru veiðimennsku, hvað þá virðingu við náttúruna.

Haraldur Bjarnason, 20.7.2010 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband