Vatnið?

"Prestur kirkjunnar blessaði vatnið fyrst með bæn á ströndinni og síðan með því að fara út í sjó og blessa vatnið," segir í fréttinni. Ég hef nú alltaf vanist því að kalla saltan sjóinn sjó og ferskt vatnið vatn. 

Kannski er þetta bara smámunasemi en kannski eigum við eftir að sjá skrifaðar fréttir um að togararnir eða nótaskipin hafi haldið út á vatnið til þorsk- eða síldveiða. Ef þróunin í fréttaskrifum er eins og í þessari frétt þarf það ekki að koma á óvart. 


mbl.is Blessaði vatnið í Nauthólsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Íslendingar hafa margir verið gjarnir á að sletta -og þá aðallega amerísku.  Mér þykir þó versna í því þegar þeir taka upp málvenjur sem koma bara hallærislega út á íslensku.  Í útlandinu er farið í vatnið þegar menn baða sig í sjó, en við höfum hingað til látið duga að kalla sjóinn sjó.  Höldum því áfram, hitt þykir mér heldur asnalegt.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 20.1.2010 kl. 00:32

2 Smámynd: Promotor Fidei

Er ekki örugglega vatn í sjónum? Agalega er það leiðinlegt og lítið áhugavert þegar fólk fer að kjabba og fjasa yfir svona smáatriðum í málfari.

Hitt er áhugaverðara umræðuefni hvaða leyfi þessi rúsneski hefur til að blessa nokkurn hlut í almennu rými. Margt í stefnu og verkum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar misbýður siðferðiskennd minni verulega, og þykir mér á mér brotið ef í hvert skipti héreftir sem ég fer í sund í Nauthólsvík að ég neyðist til að baða mig upp úr heilögum vökva þessarar grimmu og vanþróuðu trúarstofnunar.

Promotor Fidei, 20.1.2010 kl. 02:50

3 identicon

Það er vatn í sjónum, en þú kallar vatn ekki sjó og sjó ekki vatn, einafalt.

en hvernig getur nauthólsvíkin verið almennt rými, rými er yfirleitt eitthvað sem er takmarkað,en víkin er mjög opinn ogsjórinn sem hann blessaði getur varla talist eitthvað sem er fast við víkina?

mér er nú alveg sama hvað prestar gera í sínum frítíma ;)

Jón Ingi (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband